Hoppa í meginmál
Norræna Húsið • 24. apríl kl. 10:00–18:00

Ráðstefna: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland?

Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Norræna húsinu miðvikudaginn 24. apríl frá kl. 10:00 – 18:00.

Líkt og undanfarin ár er boðið til samtals þar sem alþjóðamálin eru krufin og allar þær áskoranir sem við blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.

Komið og takið þátt í fjörugum og fræðandi umræðum. Frekari upplýsingar og möguleika til að skrá sig má finna hér.