Hoppa í meginmál
Norræn samvinna · 28.11.2023

Rafrænn kynningarfundur um verkefnastyrki Nordplus

Þann 8. desember (2023) verður haldinn rafrænn kynningarfundur um verkefnastyrki Nordplus. Tilefnið er að næsti umsóknarfrestur um styrki er 1. febrúar, 2024.

Í tilkynningu frá Rannís segir að kynnt verði öll þau tækifæri sem Nordplus býður upp á.

“Fyrir þau sem hafa áhuga á að sækja um styrk eða vilja heyra meira um umsóknarferlið, er tilvalið að mæta og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið.”

Rannís rekur landsskrifstofu Nordplus á Íslandi. Hér má sjá tilkynninguna í heild.