Alþingi – Kirkjustræti við Austurvöll
- Á fjögurra ára fresti eru haldnar kosningar þar sem 63 þingmenn eru kosnir til Alþingis.
- Alþingi var stofnað á Þingvöllum árið 930 og er því bæði elsta stofnun þjóðarinnar og sú æðsta.
- Stofnun Alþingis markar upphaf þjóðríkis á Íslandi.
- Á Alþingi eru sett lög og Alþingi ákveður eyðslu ríkisins og þá skatta sem landsmenn þurfa að greiða.
- Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið. Alþingi ákveður hvaða lög eru sett en forsetinn þarf að staðfesta lögin með undirskrift.
- Alþingi hefur eftirlit með störfum ráðherra og ríkisstjórnarinnar, sem er kallað framkvæmdarvaldið.
- Íslenskir ríkisborgarar, 18 ára og eldri, sem hafa lögheimili á Íslandi mega kjósa í alþingiskosningum.
- Átta stjórnmálaflokkar eiga þingmenn á Alþingi: Framsóknarflokkur, Píratar, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Vinstri hreyfingin– grænt framboð.