Ráðningarsamningur
- Mikilvægt er að gera skriflegan ráðningarsamning til að tryggja réttindi sín.
- Laun og kjör eiga að vera þau sömu og gilda á íslenskum vinnumarkaði. Ef launin eru lægri en kjarasamningar segja til um þá er ráðningarsamningurinn ógildur.
Innihald ráðningarsamnings
Í ráðningarsamningi á að koma fram:
- Hvert er verksvið starfsmannsins, það er lýsing á starfi.
- Hvar vinnan fer fram.
- Hver eru laun, vinnuaðstaða og hve langur vinnudagurinn er.
- Til hvaða stéttarfélaga er greitt.
- Lífeyrissjóðgreiðslur.
- Skýrar upplýsingar um slysa- og sjúkratryggingar, en vinnuveitandi er ábyrgur fyrir því að starfsmaðurinn sé tryggður í starfi.
- Gildistími ráðningarsamnings.
Upplýsingar og aðstoð
- Ef starfsmaður hefur fengið rangar upplýsingar um hvernig atvinnuskráningu hans er háttað, til dæmis ef hann grunar að hann sé í ólöglegri vinnu, getur hann leitað upplýsinga og aðstoðar hjá sínu verkalýðsfélagi, samtökum stéttar- og verkalýðsfélaganna og hjá Fjölmenningarsetri.
-
Sjá verkalýðsfélög.
|
Staðlaða ráðningarsamninga er að fá hjá Vinnumálastofnun og þjónustuskrifstofum hennar um landið. Ráðningarsamningur á: |

