Leit að vinnu
Atvinnumiðlanir hjálpa fólki með óbundið atvinnuleyfi í atvinnuleit og veita ráðgjöf um hin ýmsu atriði sem fylgja því að leita sér að vinnu.
Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar
-
Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru opinberar vinnumiðlanir.
-
Þær geta aðstoðað þá sem hafa óbundið atvinnuleyfi við að leita sér að vinnu.
-
Hjá þjónustuskrifstofum er hægt að skrá sig og sækja um störf.
-
Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru staðsettar víða á landinu.
Aðrar vinnumiðlanir
Starfatorg.is - laus störf hjá ríkinu
HH Ráðgjöf - Ráðningarþjónusta
Einnig er hægt að hafa samband við fyrirtæki með símtali, tölvupósti eða með því að mæta á staðinn og athuga hvort þeir séu að ráða nýtt fólk.

