Atvinnuleyfi
Með samningnum um EES hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að veita launamönnum, sem eru ríkisborgarar aðildarríkja EES/EFTA, forgang að innlendum vinnumarkaði. Ríkisborgarar ríkja innan EES/EFTA þurfa ekki atvinnuleyfi á Íslandi
Ríkisborgarar ríkja utan EES
-
Ríkisborgarar ríkja utan EES-svæðisins þurfa atvinnuleyfi áður en þeir flytja til Íslands vegna atvinnuþátttöku.
-
Ef einstaklingur er á Íslandi þegar sótt er um atvinnuleyfi fyrir hann í fyrsta sinn þarf hann yfirleitt að fara af landi brott. Vinnumálastofnun gefur nánari upplýsingar.
Vinnumálastofnun Hafnarhúsinu
Tryggvagötu 150 Reykjavík
Sími: (+354) 515-4800
Upplýsingar um atvinnuréttindi útlendinga á vef Vinnumálastofnunar
Upplýsingar um atvinnuleyfi á vef Útlendingastofnunar
Umsókn um atvinnuleyfi
-
Atvinnurekandi sækir um atvinnuleyfi en ekki starfsmaðurinn sjálfur. Atvinnurekandi skilar inn atvinnuleyfisumsókn, ásamt umsókn útlendingsins um dvalarleyfi, til Útlendingastofnunar.
-
Útlendingastofnun sendir umsóknina um atvinnuleyfi til Vinnumálastofnunar sem metur hvort öll skilyrði séu uppfyllt fyrir útgáfu atvinnuleyfis.
-
Atvinnuleyfi skiptast upp í sex flokka:
-
-
Tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar - EYÐUBLAÐ
-
Tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli - EYÐUBLAÐ
-
Tímabundið atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk - EYÐUBLAÐ
-
Tímabundið atvinnuleyfi vegna sérstakra ástæðna - EYÐUBLAÐ
-
Tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar - EYÐUBLAÐ
-
Tímabundið atvinnuleyfi vegna náms - EYÐUBLAÐ
-
Hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn um atvinnuleyfi?
-
Skriflegur ráðningarsamningur milli atvinnurekanda og þess sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir. Laun þurfa að vera í samræmi við gildandi kjarasamninga en á Íslandi eru lögbundin lágmarkslaun.
-
Atvinnurekandi þarf að kaupa sjúkratryggingu fyrir þann sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir.
-
Fullnægjandi heilbrigðisvottorð frá lækni sem sýnir heilsufarsástand þess sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir. Vottorðið þarf að vera á íslensku eða ensku.
Sjá nánar tímabundið atvinnu- og dvalarleyfi og fylgigögn
Atvinnuleyfi í öðru EES-ríki gildir ekki á Íslandi.
Framlenging á atvinnuleyfi
-
Umsókn um framlengingu á atvinnuleyfi þarf að berast Vinnumálastofnun minnst einum mánuði áður en gildandi atvinnuleyfi rennur út.
-
Atvinnurekandi skilar inn umsókn um framlengingu á atvinnuleyfi, ásamt umsókn útlendingsins um framlengingu á dvalarleyfi, til Útlendingastofnunar. Þaðan er umsókn um framlengingu á atvinnuleyfi send til Vinnumálastofnunar.
-
Útlendingurinn sjálfur ber ábyrgð á því að umsókn um framlengingu á dvalarleyfi sé lögð inn til Útlendingastofnunar í tæka tíð.
-
Atvinnurekandi ber ábyrgð á að umsókn um framlengingu á atvinnuleyfi sé lögð inn hjá Útlendingastofnun í tæka tíð.
-
Atvinnuleyfi er yfirleitt veitt til eins árs í senn þó aldrei lengur en til þess tíma sem dvalarleyfi hefur verið veitt.

