Vinna

Vinna

  • Danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar þurfa ekki atvinnuleyfi á Íslandi. Það sama gildir um ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), utan ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu.
  • Aðrir erlendir ríkisborgarar þurfa að útvega atvinnuleyfi fyrir komuna til landsins og er það atvinnurekandinn sem sækir um leyfið.
  • Allir hafa rétt á að vera í verkalýðsfélagi en verkalýðshreyfingin er málsvari launþega og tryggir réttindi þeirra. Það er ekki skylda að vera í verkalýðs- eða stéttarfélagi en það eru ýmis réttindi sem fylgja því að vera skráður í verkalýðs- eða stéttarfélag.
  • Að þiggja svarta vinnu er lögbrot. Þeir sem stunda vinnu á Íslandi eiga að borga skatt af launum sínum og er það yfirleitt atvinnurekandinn sem sér um að draga skatt og önnur gjöld af launum starfsmanna sinna. 
  • Verktakar skila sköttum og launatengdum gjöldum sjálfir.
  • Starfsréttindi eru jafngild innan EES-svæðisins en útlendingar utan EES-svæðisins þurfa jafnan að fá starfsréttindi sín metin hér á landi sjálfir.
  • Launþegar ættu alltaf að fara fram á að gerður yrði skriflegur ráðningarsamningur og fylgjast með því að launaseðlar séu í samræmi við samning og að laun séu í réttu hlutfalli við unna tíma.
 

Orðskýringar

Tengt efni


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.