Túlkaþjónusta
Félag dómtúlka og skjalaþýðenda heldur úti skrá yfir starfandi túlka og löggilta þýðendur. Á vefsíðu félagsins er hægt að leita eftir túlki og tungumáli. Sjá nánari upplýsingar hér.
Túlkaþjónustur
Alþjóðasetur
Alþjóðasetur rekur túlkaþjónustu og hægt er að panta túlk með því að senda tölvupóst á asetur@asetur.is, hringja í síma 530-9300 eða í gegnum heimasíðu Alþjóðaseturs, www.asetur.is. Utan afgreiðslutíma er hægt að hringja í neyðarsímann 663-0810.
Alþjóðasetur (kort)
Laugavegur 71
101 Reykjavík
Sími (+354) 530-9300
Netfang: asetur@asetur.is
Veffang: www.asetur.is
InterCultural Iceland
InterCultural Iceland heldur úti fræðslu í tengslum við fjölmenningarlegt samfélag, býður upp á túlkaþjónustu á yfir 50 tungumálum og veitir faglega ráðgjöf varðandi málefni innflytjenda og um íslenskt samfélag. Hægt er að panta túlk með því að hringja í síma 517-9345 eða með því að senda tölvupóst á netfangið angelica@ici.is
InterCultural Iceland (kort)
Suðurlandsbraut 6
108 Reykjavík
Sími (+354) 517-9345
Netfang: ici@ici.is
Veffang: www.ici.is
Jafnréttishús
Jafnréttishús tekur þátt í margskonar námskeiðahaldi og býður upp á túlkaþjónustu og ráðgjafarþjónustu fyrir innflytjendur og Íslendinga. Hægt er að panta túlk með því að hringja í síma 534-0107 eða með því að senda tölvupóst á netfangið jafn@jafn.is.

