Alþjóðahús

Alþjóðahús

Laugavegur 37Alþjóðahúsið rekur umfangsmikla þjónustu fyrir útlendinga þar sem veitt er ráðgjöf og aðstoð við ýmis mál. Má þar nefna ókeypis lögfræðiráðgjöf, persónulega aðstoð félagsráðgjafa og prests, og túlka- og þýðingarþjónustur. Þá eru haldin íslenskunámskeið og Alþjóðahúsið rekur öfluga fræðslumiðstöð.

Á heimasíðu Alþjóðahúss er að finna fjölbreyttar og gagnlegar upplýsingar um íslenskt samfélag fyrir innflytjendur. Þar er einnig að finna ýmsar tölulegar upplýsingar auk umfjöllunar um starfsemi hússins.

Vefur Alþjóðahúss er á ýmsum tungumálum.

Hægt er að panta túlk á heimasíðu Alþjóðahúss, senda tölvupóst á tulkun@ahus.is eða hringja í síma (+354) 530-9303. Utan afgreiðslutíma er hægt að panta túlk í síma (+354) 663-0502.

Alþjóðahúsið (kort)

Ofanleiti 2, 1. hæð

103 Reykjavík

Sími (+354) 530-9300

Netfang: info@ahus.is

Veffang: www.ahus.is



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Orðskýringar

Tengt efni


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.