Vegabréf
Íslenskir ríkisborgarar geta sótt um vegabréf hjá sýslumönnum um allt land, að undanskildu sýslumannsembættinu í Reykjavík. Aðalafgreiðsla vegabréfa á höfuðborgarsvæðinu er hjá sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18 (kort).
Umsóknin
Umsækjendur um íslenskt vegabréf verða að sækja um það í eigin persónu. Umsækjandi fyllir ekki lengur út hefðbundið umsóknareyðublað heldur er umsóknin sett beint inn í umsóknarkerfið ,,pappírslaust”. Ekki þarf heldur að hafa meðferðis mynd þegar sótt er um almennt vegabréf.
Það sem umsækjandi þarf að hafa meðferðis þegar sótt er um íslenskt vegabréf er:
-
Persónuskilríki með mynd
-
Greiðslu fyrir vegabréfið
-
Samþykki forsjáraðila ef við á
-
Samþykki lögráðamanns ef við á
Umsóknarstaðir um íslenskt vegabréf erlendis
Upplýsingar um vegabréf á vefsíðu Þjóðskrár Íslands

