Þjóðskrá
Þjóðskrá
Þjóðskrá er skrifstofa í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu sem heldur úti þjóðskrá. Í þjóðskrá eru meðal annars skráðar kennitölur og nöfn fólks sem er búsett á Íslandi, kyn, hjúskaparstaða, barneignir, lögheimili, aðsetur ef við á, fæðingarstað og ríkisfang þess. Þá er skráð í þjóðskrá hvert sóknargjöld vegna trúfélaga eigi að renna og breytingar sem verða á þessum atriðum og öðrum högum manna, ásamt fleiru.
Hjá Þjóðskrá er einnig haldið utan um utangarðsskrá en það er sérstök skrá yfir erlenda ríkisborgara sem fá úthlutaða kennitölu en eru ekki með skráð lögheimili hér á landi.
Þjóðskrá tekur við tilkynningum fólks um búferlaflutninga, bæði innanlands og milli landa, beiðnum um nafnabreytingar, nafnagjafir barna og skráningu sambúðar.
EES-ríkisborgarar fylla út þar til gerð eyðublöð til að skrá rétt sinn til dvalar á Íslandi og skila til Þjóðskrár, ásamt því að þar er hægt að sækja um skráningu og úthlutun kennitölu til erlends ríkisborgara.
Þjóðskrá gefur út ýmis vottorð, eins og til dæmis fæðingarvottorð, vottorð um hjúskaparstöðu, sambúðarskráningu, búsetu og staðfestingu á dánardegi.
Afgreiðslutími Þjóðskrár er frá klukkan 8.30 til 16.00 á virkum dögum og símatími á milli klukkan 9.00 og 16.00.
|
Borgartúni 24 150 Reykjavík Sími: 569 2900 Fax: 569 2949 Netfang: thjodskra@thjodskra.is |
|---|


