Þjónusta sveitarfélaga
- Sveitarfélög bjóða upp á ýmiss konar þjónustu. Öll sveitarfélög eiga samkvæmt lögum að bjóða upp á grunnþjónustu á ákveðnum sviðum.
- Sveitarfélög reka leikskóla og grunnskóla og bera ábyrgð á félagsþjónustu. Félagsþjónusta getur meðal annars falist í fjárhagsaðstoð og aðstoð vegna húsnæðismála. Sveitarfélög bera jafnframt ábyrgð á barnavernd.
- Réttur til félagsþjónustu, sem á að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúa, er byggður á því að viðkomandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu sem sótt er um aðstoð hjá.
- Vegna skilyrða í lögum um útlendinga, þar sem fram kemur að framfærsla útlendings skuli vera trygg, þá getur fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi haft áhrif á rétt til skráningar lögheimilis og umsókn um ríkisborgararétt. Önnur aðstoð frá sveitarfélagi, svo sem vegna fjölskylduerfiðleika, vegna barna og ungmenna, skilnaðar eða heimilisofbeldis, hefur ekki áhrif.
- Húsaleigubætur hafa hvorki áhrif á lögheimilisskráningu né umsókn um ríkisborgararétt.
- Ef þörf er á þjónustu sveitarfélags er hægt að panta viðtal á skrifstofu sveitarfélagsins. Sum sveitarfélög bjóða upp á túlkun við slíkar aðstæður. Leikskólar og grunnskólar eiga að leitast við að veita foreldrum aðstoð túlks vegna samskipta þeirra við skóla barna sinna.
|
Þegar þú flytur til Íslands og skráir lögheimili þitt í ákveðnu sveitarfélagi þá sækir þú um þjónustu þar. Þú getur til dæmis sótt um húsaleigubætur, þjónustu dagforeldra og um leikskólapláss, skráð börn í grunnskóla, fengið upplýsingar um fyrirtæki sem selja hita og rafmagn, um sorpflokkun, tómstundir, íslenskukennslu og margt fleira. |
|---|

