Stefnumótun
Mörg sveitarfélög hafa lagt fram stefnumótun í málefnum innflytjenda og unnið er að móttökuáætlunum í nokkrum þeirra.
Tilgangurinn með slíkri vinnu er að tryggja að hagsmunir innflytjenda verði tryggðir innan sveitarfélaganna, að þeir þekki réttindi sín og skyldur sem íbúar viðkomandi sveitarfélags og hafi greiðan aðgang að þjónustu sveitarfélaga. Það er svo meginmarkmið með slíkri stefnumótun að innflytjendur öðlist sem fyrst sömu stöðu og aðrir íbúar og séu viðurkenndir þátttakendur í samfélaginu í hverju sveitarfélagi.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur samþykkt sérstaka stefnumótun í málefnum innflytjenda og má nálgast hana hér
Upplýsingar um stefnur og aðgerðaáætlanir einstaka sveitarfélaga:
|
|
|---|
Sveitarfélög með stefnu í vinnslu
Fimmtán sveitarfélög eru með stefnu í vinnslu: 1. Akranesbær 2. Akureyrarbær 3. Dalvíkurbyggð 4. Fljótsdalshérað 5. Garðabær 6. Grundarfjarðarbær 7. Mosfellsbær 8. Norðurþing 9. Vestmannaeyjarbær 10. Vesturbyggð 11.-12. Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur vinna saman að stefnumótun. 13.-15. Ásahreppur, Rangárþing eystra og ytra vinna saman að stefnumótun.

