Sveitarfélög
Á Íslandi eru tvö stjórnsýslustig, ríki og sveitarfélög. Á fjögurra ára fresti kjósa íbúar sveitarfélaga fulltrúa sína í sveitarstjórn til að fara með framkvæmd hins staðbundna lýðræðis.
samband_isl_sveitarfelaga
Samband íslenskra sveitarfélaga
-
Sveitastjórnirnar eru það stjórnvald sem stendur almenningi næst og þau bera ábyrgð á nærþjónustu við íbúa sveitarfélaga.
Sveitarfélögin hafa öll sömu stöðu og lagaskyldur, óháð fjölda íbúa.
Sveitarfélögin annast framkvæmd og bera ábyrgð á mörgum lykilþáttum velferðarþjónustunnar, svo sem leikskólum, grunnskólum og félagsþjónustu. Þau bera einnig ábyrgð á tæknilegum innviðum í hverju sveitarfélagi, svo sem neysluvatni, upphitun húsa og sorpvinnslu.
Loks eru þau skipulags- og byggingaryfirvöld og fara með heilbrigðiseftirlit.
Í hnotskurn
- Landið skiptist upp í 76 sveitarfélög sem hvert hefur sína eigin sveitarstjórn.
- Sveitarfélögin hafa réttindi og skyldur gagnvart íbúum sínum og ríkisvaldinu.
- Einstaklingur telst íbúi þess sveitarfélags þar sem lögheimili hans er.
- Sveitarfélög bjóða upp á ýmiskonar þjónustu og því er nauðsynlegt að skrá sig hjá viðkomandi sveitarstjórnar-skrifstofu þegar flutt er í nýtt sveitarfélag.
- Erlendir ríkisborgarar, 18 ára og eldri, fá kosningarétt í sveitarstjórnar-kosningum eftir að hafa átt lögheimili hér á landi samfellt í fimm ár.
-
Danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar, 18 ára og eldri, sem hafa átt hér lögheimili í þrjú ár samfellt, öðlast kosningarétt.
Samband íslenskra sveitarfélaga

