Samfylkingin
Jafnaðarmenn á Íslandi - Samfylkingin
Samfylkingin er stjórnmálaflokkur íslenskra jafnaðarmanna. Flokkurinn á aðild að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna. Samfylkingin er ungur flokkur, stofnaður árið 2000, en stendur á gömlum merg og rekur sögu sína allt aftur til árdaga jafnaðarhreyfingarinnar á Íslandi í upphafi 20. aldar. Samfylkingin er fjöldahreyfing með vel á annan tug þúsunda félaga um land allt, á fulltrúa í langflestum sveitarstjórnum landsins, er næststærsti flokkurinn á alþingi og tók í fyrsta sinn þátt í ríkisstjórn vorið 2007.
Jafnrétti – frelsi – bræðralag
Grunngildi jafnaðarstefnunnar eru jafnrétti, frelsi og bræðralag. Við leggjum áherslu á frelsi hvers einstaklings til athafna og tjáningar í lýðræðislegu samfélagi. Við berjumst fyrir fullri atvinnu handa öllum, fyrir almennri menntun og gegn fátækt. Við höfnum allri mismunun, hvort sem er vegna kyns, uppruna, litarháttar eða annarra þátta.
Velferðarsamfélag
Við viljum fara sömu leið og sterkir jafnaðarflokkar í Norður-Evrópu, einkum á Norðurlöndum, hafa mótað ásamt verkalýðshreyfingunni. Við viljum öfluga velferðarþjónustu og félagsleg réttindi.
Markaðurinn – þjónn, ekki húsbóndi
Markaðshagkerfi með heilbrigðri samkeppni hefur reynst vel í almennum atvinnurekstri og viðskiptum. Markaðurinn á hinsvegar að vera þjónn, ekki húsbóndi. Stjórnvöld eiga að tryggja almannaþjónustu, skapa atvinnufyrirtækjunum heilbrigt samkeppnisumhverfi og beita kröftum almannavaldsins til að efla menningu og menntir. Auðlindir eru best komnar í þjóðareign þar sem almenningur nýtur afrakstursins með nýtingargjaldi.
Kvenfrelsi – barnvænt samfélag
Samfylkingin leggur áherslu á jafnrétti karla og kvenna. Flokkurinn lítur á það sem forgangsverkefni að sem allra best verði búið að börnum og barnafjölskyldum. Við viljum einnig að aldraðir fái góðan lífeyri og fullnægjandi aðstoð til að njóta ævikvöldsins og veita samfélaginu af reynslu sinni.
Í sátt við umhverfið
Umhverfisvakning síðustu áratuga fellur vel að jafnaðarstefnunni. Við viljum vernda hina fögru og einstæðu náttúru Íslands, og allir jarðarbúar verða að leggja sitt af mörkum í baráttu gegn loftslagsvá.
Alþjóðleg samskipti – aðild að Evrópusambandinu
Samfylkingin leggur áherslu á alþjóðlega samvinnu um viðskipti, öryggismál, umhverfisvernd, menntir, menningu og möguleika allra þjóða til að brjótast úr fátækt. Íslendingar eiga að reka metnaðarfulla stefnu við þróunarsamvinnu, meðal annars með því að miðla verðmætri sérþekkingu á sviði sjávarútvegs og orkumála. Við viljum að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu.
Innflytjendur – virkir jafningjar í fjölmenningarsamfélaginu á Íslandi
-
Samfylkingin vill lifandi og fordómalaust fjölmenningarsamfélag á Íslandi. Innflytjendur verða að geta lært íslensku og tileinkað sér helstu þætti í íslenskri menningu, en þeir eiga líka að varðveita eigin arf og miðla honum til annarra íbúa á Íslandi.
-
Við viljum taka vel á móti erlendu fólki sem flyst til landsins og auðvelda því að verða virkir þátttakendur í íslensku samfélagi, rækta menningu sína og miðla henni.
-
Við viljum tryggja íslensku- og samfélagskennslu fyrir innflytjendur endurgjaldslaust, bæði í sérstökum skólum og á vinnustað.
-
Við viljum að menntun og starfsreynsla innflytjenda verði metin í samráði við skóla og atvinnulíf. Það á að byggja upp námsleiðir sem brúa bil milli menntunar erlendis frá og þarfa íslensks atvinnulífs.
-
Við viljum tryggja jafna stöðu útlendinga á vinnumarkaði og koma í veg fyrir félagsleg undirboð þannig að allar ráðningar erlends verkafólks séu í samræmi við gildandi kjarasamninga.
-
Við viljum að útlendingur með atvinnuleyfi geti starfað þar sem hann vill og að leyfið sé ekki bundið atvinnurekandanum.
www.samfylking.is/ samfylking@samfylking.is
-
Flokksfélög Samfylkingarinnar starfa um allt land. Hægt er að kynnast Samfylkingunni, félögum hennar og stefnu hennar á vefsetrinu www.samfylking.is. Þar er einnig hægt að gerast félagi í Samfylkingunni. Landsmiðstöð flokksins er á Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík, sími 414 2200.
-
Í tengslum við flokkinn starfar klúbbur innflytjenda og áhugamanna um fjölmenningu, Landneminn, og má skrá sig í klúbbinn eða á póstlista hans á skrifstofunni.
Listabókstafur Samfylkingarinnar í sveitarstjórnar- og alþingiskosningum er S.
Um Samfylkinguna á serb/króatísku
Um Samfylkinguna á litháísku
