Ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja
Ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja mega koma til landsins án sérstaks leyfis og dvelja eða starfa hér á landi í allt að þrjá mánuði áður en lögheimili er skráð og sex mánuði ef viðkomandi er í atvinnuleit. Að þeim tíma loknum er nauðsynlegt að skrá sig hjá Þjóðskrá Íslands, að því gefnu að skilyrði um framfærslu sé uppfyllt.
EES/EFTA ríkin eru eftirtalin:Austurríki - Belgía - Búlgaría - Danmörk - Eistland - Finnland - Frakkland - Grikkland - Holland - Írland - Ísland - Ítalía - Kýpur - Lettland - Liechtenstein - Litháen - Lúxemborg - Malta - Noregur - Portúgal - Pólland - Rúmenía - Spánn - Slóvakía - Slóvenía - Stóra-Bretland - Svíþjóð - Tékkland - Ungverjaland - Þýskaland - Sviss |
|---|
Allir sem dvelja eða ætla að dvelja á Íslandi í sex mánuði eða lengur skulu samkvæmt lögum eiga lögheimili hér á landi. Réttur til opinberrar þjónustu og aðstoðar er yfirleitt háður því að viðkomandi sé með skráð lögheimili og því er ráðlegt að lögheimili sé skráð hið fyrsta, ef einstaklingur hyggur á búsetu á Íslandi. Uppfylla þarf skilyrði um framfærslu svo unnt sé að skrá lögheimili í þjóðskrá.
|Skráning vegna langtímadvalar|Skráning vegna skammtímadvalar|Endurkoma|
| Upplýsingar um lögheimilisskráningu | Upplýsingar um sjúkratryggingar |
-
Greinargóðar upplýsingar um flest það sem snýr að flutningi til Íslands og þau réttindi sem ávinnast með flutningi eru að finna í bæklingnum Fyrstu skref ríkisborgara EES- og EFTA-ríkja. Hægt er að nálgast hann, bæði á prentvænu formi sem og í rafrænni útgáfu hér.

