Lögheimili
Lögheimili
-
Sá sem dvelur á Íslandi í sex mánuði eða lengur verður að eiga lögheimili hér á landi. Lögheimili er sá staður þar sem höfð er föst búseta.
-
Til að geta átt lögheimili hér er nauðsynlegt að hafa dvalarleyfi (fyrir ríkisborgara ríkja utan EES) og kennitölu.
-
Þegar dvalarleyfi er skráð er lögheimili skráð um leið og miðast skráningin í Þjóðskrá við útgáfudag dvalarleyfisins (ríkisborgarar ríkja utan EES).
-
Lögheimili er skráð hjá Þjóðskrá.
-
Það er mikilvægt að skrá lögheimili sitt. Þeir sem ekki hafa skráð lögheimili sitt njóta ekki sömu réttinda innan heilbrigðistryggingakerfisins eða hjá Félagsþjónustunni. Þeir eru því ekki sjúkratryggðir ef þeir verða veikir, fá ekki atvinnuleysisbætur ef þeir missa vinnuna og fá ekki fæðingarorlof ef þeir eignast börn.
Reglur
-
Föst búseta er á þeim stað þar sem einstaklingur er oftast; þar sem einstaklingurinn er með eigur sínar, sinnir tómstundum og sefur þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra ástæðna.
-
Lögheimili verður að hafa skilgreint heimilisfang við götu eða hús með nafni.
-
Að búa á gistihúsi, sjúkrahúsi, í verbúð, vinnubúðum eða öðru húsnæði af því tagi, getur ekki verið lögheimili eða föst búseta.
-
Aðeins er hægt að eiga lögheimili á einum stað.
-
Hjón eiga sama lögheimili. Ef þau búa á tveimur stöðum þá á lögheimilið að vera hjá því hjóna sem börnin búa hjá.
-
Ef hjón deila ekki saman stað og börn þeirra búa hjá þeim báðum eða þau eru barnlaus, verða þau að ákveða á hvorum stað lögheimilið er. Ef einstaklingur skráir ekki lögheimili sitt ákveður Þjóðskrá það.
-
Sömu reglur gilda um einstaklinga í sambúð eða í staðfestri samvist.
-
Barn 17 ára eða yngra á sama lögheimili og foreldrar þess ef þeir búa saman, annars hjá því foreldri sem hefur forsjá barnsins.
-
Einstaklingur sem flytur frá Íslandi og hættir þar með að eiga lögheimili hér á landi skal tilkynna það til sveitarfélagsins þar sem hann býr áður en hann flytur burt. Einnig þarf að tilkynna hvar viðkomandi ætlar að búa erlendis.
Allir sem hafa lögheimili á Íslandi eiga að vera skráðir í þjóðskrá.


