Leyfi og áritanir
Dvalarleyfi - Vegna alþjóðlegra samninga, svo sem á milli Norðurlandanna og aðildarríkja að EES- og EFTA-samningunum, gilda mismunandi reglur eftir ríkisfangi. Þeir sem ekki eru norrænir ríkisborgarar eða eru ríkisborgarar ríkja sem ekki eiga aðild að EES- eða EFTA-samningnum þurfa að sækja um dvalarleyfi ef þeir ætla að dvelja lengur en þrjá mánuði á Íslandi. Norrænir ríkisborgarar og rikisborgarar EES- og EFTA-ríkja sækja ekki um dvalarleyfi
Atvinnuleyfi - Ríkisborgarar ríkja utan EES-svæðisins þurfa atvinnuleyfi áður en þeir flytja til Íslands vegna atvinnuþátttöku. Norrænir ríkisborgarar og rikisborgarar EES- og EFTA-ríkja sækja ekki um atvinnuleyfi
Búsetuleyfi - Aðalmunurinn á búsetuleyfi og öðrum leyfum er sá að búsetuleyfi er ótímabundið leyfi. Það þýðir að ef umsækjandi fær útgefið búsetuleyfi þarf hann ekki að sækja um framlengingu á leyfinu eins og þarf að gera með dvalarleyfi. Áður en hægt er að sækja um búsetuleyfi verður umsækjandi að uppfylla ákveðin skilyrði, svo sem. um íslenskukunnáttu, búsetu á Íslandi og fleira
Vegabréfsáritun - Ekki þurfa allir vegabréfsáritun áður en ferðast er til Íslands en það fer eftir ríkisfangi viðkomandi. Upplýsingar um hverjir þurfa vegabréfáritun, hvar sótt er um vegabréfsáritun og fleira

