Kennitölu-umsókn annarra en EES ríkisborgara

Kennitölu-umsókn áður en útlendingur kemur til landsins

Útlendingar gætu þurft að fá kennitölu áður en þeir flytja til landsins, til dæmis til að geta keypt íslenska sjúkratryggingu. Þá er það tryggingafélagið sem sækir um kennitölu fyrir útlending á eyðublaðinu ,,Beiðni um skráningu og úthlutun kennitölu til erlends ríkisborgara”: Hægt er að fylla eyðublaðið út á vefnum, en prenta þarf eyðublaðið út og skrifa undir það. Ljósrit af vegabréfi þarf að fylgja með og umsóknin send í pósti til Þjóðskrár Íslands.

Einstaklingur sem hefur fengið kennitölu hjá Þjóðskrá Íslands en er ekki kominn til landsins er einungis skráður í sérstaka kennitöluskrá hjá Þjóðskrá Íslands, með aðsetur og lögheimili erlendis, og ávinnur sér engin réttindi fyrr en hann hefur fengið útgefið dvalarleyfi og lögheimilisskráningu hér á landi.

Nánari upplýsingar má fá hjá Þjóðskrá Íslands (www.skra.is), Útlendingastofnun (www.utl.is) og Fjölmenningarsetri (sjá upplýsingasíma).

Kennitölu-umsókn eftir komu til landsins

Langtímadvöl

Eftir að útlendingur kemur til landsins, og áður en hann fær útgefið dvalarskírteini, þarf hann að skrá aðsetur á Íslandi sem síðar verður hans lögheimili. Ef einstaklingurinn er ekki kominn með kennitölu (t.d. í gegnum tryggingafélag), sækir Útlendingastofnun um kennitölu fyrir hann. Umsókn um kennitölu og beiðni um skráningu lögheimilis er hluti af umsókn um dvalarleyfi. Útlendingastofnun sér um að sækja um kennitölu fyrir einstaklinga sem þurfa dvalarleyfi eða dvalarleyfisskírteini á Íslandi.

Ef útlendingur þarf kennitölu í öðrum tilgangi en vegna öflunar dvalarleyfis þarf stofnun/fyrirtæki að sækja um kennitölu fyrir hann.

Útlendingur getur ekki sótt um kennitölu fyrir sjálfan sig.

Skammtímadvöl/ferðamenn

Ferðamaður sem kemur til Íslands gæti þurft kennitölu til að njóta tiltekinnar þjónustu. Ef slíkt er tilfellið verður sá aðili sem ferðamaðurinn þarf að fá þjónustu hjá, að sækja um kennitölu hjá Þjóðskrá Íslands og er þá ferðamaðurinn skráður á sérstaka kennitöluskrá með lögheimili erlendis. Þjónustuaðilinn sækir um kennitölu fyrir útlending á eyðublaðinu ,,Beiðni um skráningu og úthlutun kennitölu til erlends ríkisborgara”: Hægt er að fylla eyðublaðið út á vefnum, en prenta þarf eyðublaðið út og skrifa undir það. Ljósrit af vegabréfi þarf að fylgja með og umsóknin send í pósti til Þjóðskrár Íslands.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina