Vottorð
Að loknu starfstímabili óska margir eftir E-301 sem er vottorð um vinnutímabil á Íslandi og greiðslu tryggingagjalds. Vinnumálastofnun gefur þetta vottorð út, en iðgjald greitt á Íslandi bætir rétt viðkomandi til atvinnuleysisbóta í heimalandi.
Til þess að hægt sé að gefa út E-301 þarf viðkomandi að hafa greitt tryggingagjaldið, en hluti þess er iðgjald í atvinnuleysistryggingasjóð.
Ef einstaklingur ætlar í atvinnuleit í öðru EES-ríki, en uppfyllir ekki skilyrðin fyrir því að eiga rétt á atvinnuleysisbótum, getur hann yfirfært þá starfsreynslu sem hann hefur áunnið sér á Íslandi. Til þess þarf hann að fylla út eyðublaðið E-301/N-301.
Viðkomandi verður að hafa trygginga- og starfstímabil á Íslandi staðfest á eyðublaðinu E-301/N301 til að geta reiknað með þeim. Hægt er að fá vottorðið með því að snúa sér til Atvinnuleysistryggingasjóðs, en muna þarf eftir því að fyrst eru not fyrir vottorðið, ef viðkomandi verður atvinnulaus, eftir að hann hefur verið í starfi og þá einungis ef hann óskar eftir því að dvelja áfram í öðru EES-ríki.
- Umsókn um E-301 vottorð - Umsóknareyðublað á ensku - Umsóknareyðublað á pólsku
- Vottorð vinnuveitanda til staðfestingar á starfstíma og starfshlutfalli launþega vegna E301 umsóknar
- Leiðbeiningar fyrir þá sem fara í atvinnuleit til útlanda
- Vottorð vinnuveitenda

