Vottorð
E-104 er vottorð um staðfestingu á tryggingar- og starfstímabilum í öðru EES landi. Sjúkratryggingar Íslands gefa út E-104 vottorð eftir að einstaklingur er búinn að tilkynna flutning úr landi til Þjóðskrár.
Vottorðið er staðfesting á því hvort einstaklingur geti fengið sjúkratryggingu í landinu sem hann flytur til, strax við flutninginn frá Íslandi, því þegar einstaklingur flytur lögheimili af landi brott fellur tryggingavernd almannatrygginga á Íslandi niður.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Sjúkratryggingum Íslands (www.sjukra.is) eða tryggingaumboðum á landsbyggðinni.
|
Sjúkratryggingar Íslands (kort) Laugavegi 114-118 105 Reykjavík Sími: 515 0000 Fax: 515 0051 Netfang: sjukra@sjukra.is |
|---|

