Nánari upplýsingar
Skila þarf skattframtali til skattstjóra að minnsta kosti viku fyrir áætlaða brottför og eru eyðublöð fáanleg á skattstofum eða hjá Ríkisskattstjóra. Einnig er hægt að nálgast eyðublaðið á vefsíðu Ríkisskattstjóra - http://rsk.is/einstakl/eydublod/rsk1.
Á skattframtalinu er nauðsynlegt að komi fram heimilisfang erlendis og nafn umboðsmanns á Íslandi.
Sé framtali ekki skilað fyrir brottför skal skila því fyrir þann framtalsfrest sem gefinn er á hverju ári, yfirleitt í marsmánuði ár hvert.
Til þess að skila skattframtali rafrænt þarf að sækja um veflykil en það má gera á vefsíðu Ríkisskattstjóra - www.rsk.is/vefskil/veflyklar.asp.
- Nánari upplýsingar á vef Ríkisskattstjóra - www.rsk.is
- Skattskil á vefnum - www.skattur.is

