Nánari upplýsingar
Mikilvægt er þegar sjóðsfélagi flytur af landi brott að hann leiti til þess lífeyrissjóðs sem hann síðast greiddi til og fái upplýsingar og vottorð um stöðu lífeyrisréttinda sinna.
Einnig er hægt að sækja um lykilorð hjá flestum lífeyrissjóðum að vef sem gefur upplýsingar um stöðu lífeyrisréttinda (upplýsingarnar eru á íslensku).
Ekki er heimilt að endurgreiða iðgjöld til erlendra ríkisborgara innan EES samkvæmt samningi á milli aðildarríkjanna. Hinsvegar er heimilt að endurgreiða erlendum ríkisborgurum utan EES iðgjöldin þegar þeir flytja úr landi, ef það er ekki bannað samkvæmt milliríkjasamningum á milli Íslands og viðkomandi ríkis.

