Nánari upplýsingar
Tilkynna þarf flutning úr landi til þeirra stofnana eða fyrirtækja sem nauðsynlegt er að viti af nýju lögheimili eða heimilifangi. Öll fyrirtæki eða stofnanir sem senda póst á viðskiptavini sína, eins og viðskiptabanki, pósturinn, símafyrirtæki, orkufyrirtæki og svo framvegis, þurfa að vita um nýtt heimilisfang.
Íslandspóstur býður upp á áframsendingarþjónustu á almennum bréfpósti fyrir þá sem eru að flytja erlendis. Pósturinn áframsendir þá almennar sendingar sem stílaðar eru á gamla heimilisfangið á það nýja.
Til að nýta þessa þjónustu Íslandspósts þarf að tilkynna þeim flutninginn og greiða þjónustugjald fyrir það tímabil sem óskað er eftir. Áframsending á almennum sendingum, frá gamla heimilisfanginu innanlands yfir á það nýja erlendis, er innifalið í þjónustugjaldinu.
Nánari upplýsingar um áframsendingu pósts eru á vefsíiðu Íslandspósts (www.postur.is) og á pósthúsum landsins. Á vefsíðunni er hægt að tilkynna Íslandspósti beint um breytingar á heimilifangi (sjá www.postur.is/aframsendingar/breytaPostfangi.aspx?tegund=breytaPostfangiErlendis)
|
Íslandspóstur - aðalskrifstofa (kort) Stórhöfða 29 110 Reykjavík Sími: 580 1000 Fax: 580 1009 Netfang: postur@postur.is |
|---|

