Nánari upplýsingar

Einstaklingur sem flytur frá Íslandi, og verður þar að leiðandi ekki lengur með skráð lögheimili á Íslandi, skal tilkynna flutning til sveitarfélagsins þar sem hann býr áður en hann flytur burt. Við sama tækifæri þarf viðkomandi að tilgreina hvar hann ætlar að búa erlendis.

Ekki er hægt að breyta lögheimilisskráningu á netinu en á vefsíðu Þjóðskrár (www.thjodskra.is) er að finna eyðublaðið ,,Flutningstilkynning innanlands" sem fylla þarf út. Mögulegt er að fylla eyðublaðið út á skjánum en nauðsynlegt er að prenta það út, skrifa undir það og senda með pósti til Þjóðskrár eða fara með það á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem viðkomandi býr.

Til baka

Til baka, Senda grein, Prenta greinina