Alþingi
Alþingi Íslands
- Á fjögurra ára fresti eru haldnar kosningar þar sem 63 þingmenn eru kosnir til Alþingis.
- Alþingi var stofnað á Þingvöllum árið 930 og er því bæði elsta stofnun þjóðarinnar og sú æðsta.
- Stofnun Alþingis markar upphaf þjóðríkis á Íslandi.
- Á Alþingi eru sett lög og Alþingi ákveður eyðslu ríkisins og þá skatta sem landsmenn þurfa að borga.
- Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið. Alþingi ákveður hvaða lög eru sett og forsetinn samþykkir svo lögin.
- Alþingi hefur eftirlit með störfum ráðherra og ríkisstjórnarinnar, sem er kallað framkvæmdarvaldið.
- Íslenskir ríkisborgarar, 18 ára og eldri, sem hafa lögheimili á Íslandi mega kjósa í alþingiskosningum.
- Fimm stjórnmálaflokkar eiga þingmenn á Alþingi: Framsóknarflokkur, Borgarahreyfingin, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin– grænt framboð.
|
Hvernig getur þú haft áhrif? Með þátttöku í starfi stjórnmálaflokks getur þú haft áhrif á málefni sem þér þykir mikilvæg. Með þátttöku í starfi stéttarfélags. Með því að ræða við alþingismenn, sveitarstjórnarmenn og aðra sem gegna ábyrgðarstörfum í þjóðfélaginu. Með skrifum í fjölmiðla og með því að gefa fréttamönnum ábendingar. |


