Virðisaukaskattur og vörugjöld
Það eru ýmis gjöld og skattar sem leggjast á vöru og þjónustu. Þeir helstu eru virðisaukaskattur og vörugjöld.
Virðisaukaskattur
-
Virðisaukaskattur er almennur neysluskattur og leggst á öll viðskipti innanlands. Hann er einnig lagður á innflutta vöru og þjónustu.
Leiðbeiningar virðisaukaskatts
Vörugjöld
-
Almennt vörugjald er gjald sem leggst á vörur við innflutning eða framleiðslu innanlands. Vörugjöld á matvæli hafa verið afnumin nema á sykur og sætindi.
-
Greiða þarf áfengisgjald af neysluhæfu áfengi sem flutt er til landsins eða framleitt er hér á landi, hvort sem það er ætlað til sölu eða eigin nota.
-
Við innflutning ökutækja leggjast á vörugjöld eftir þyngd bifreiðar.
Reiknivélar hjá Tollinum fyrir ökutæki og annað sem hægt er að kaupa af netinu

