Umboðsmaður skuldara
- Meginmarkmið umboðsmanns skuldara er að bæta stöðu einstaklinga sem eiga í skulda- og greiðsluerfiðleikum og auðvelda þeim að koma greiðslubyrði og skuldastöðu sinni í ásættanlegt horf.
- Umboðsmaður skuldara hefur milligöngu um samskipti og samninga við lánardrottna með hagsmuni skuldara að leiðarljósi og veitir einstaklingum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum endurgjaldslausa aðstoð við að öðlast heildarsýn á fjámál sín og leita leiða til lausnar.
- Markmiðið er að ná fram eins hagstæðri lausn og kostur er fyrir skuldara, án tillits til hagsmuna lánadrottna.
- Starfsemi umboðsmanns skuldara er byggð á grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.
Umboðsmaður skuldara
|
|---|
Umboðsmaður skuldara í ReykjanesbæVatnsnesvegi 33, 230 Reykjanesbæ (kort) Sími 512-6600, Grænt númer 800 6600 Fax 551-4495 Netfang: ums@ums.is Veffang: www.ums.is Afgreiðslutími er frá 8:30 - 15:00 virka daga. Panta þarf tíma í síma 512-6600 eða síma 800 6600. |

