Staðfesting á staðgreiðslu skatts á Íslandi

Sótt er um vottorð sem staðfestir staðgreiðslu skatts á Íslandi hjá Ríkisskattstjóra (RSK) en greiða þarf 2.000.- kr. fyrir umsóknina. Hægt er að greiða beint inn á reikning 0338-26-175 en þá þarf einnig að fylgja kennitala Ríkisskattstjóra sem er 540269-6029.

Þegar sótt er um vottorðið þarf að fylla út eyðublað sem hægt er að nálgast hér og á heimasíðu RSK – http://www.rsk.is/ws/cm/file/rsk_1410.is.pdf

Skrá þarf á eyðublaðið hvaða vottorð óskað er eftir og fylla út þá reiti sem krafist er. Prenta þarf eyðublaðið út og umsækjandi skilar því svo til stattstofa eða sendir það beint til Ríkisskattstjóra.

Hafa ber í huga að það tekur starfsfólk RSK nokkra daga að afgreiða vottorðið.

   

Ríkisskattstjóri (kort)

Laugavegi 166

150 Reykjavík

Sími: 563-1100

Fax: 562-4440

Netfang: rsk@rsk.is





Til baka, Senda grein, Prenta greinina