Skattkort

  • Skattyfirvöld gefa út skattkort.

    • Ríkisborgari EES-ríkis sem flytur lögheimili sitt til Íslands fær sent skattkort þegar lögheimili hans hefur verið skráð hjá Þjóðskrá Íslands.
    • Einstaklingar sem koma frá ríkjum utan EES fá skattkort sent þegar lögheimili hefur verið skráð hjá Þjóðskrá Íslands og atvinnuleyfi hefur verið gefið út. Maki íslensks ríkisborgara fær skattkort sent þegar lögheimili hans hefur verið skráð. Athuga ber að skattkort jafngildir ekki heimild til atvinnu. Ríkisborgarar ríkja sem ekki eiga aðild að EES/EFTA þurfa að hafa atvinnuleyfi.

    Ef útlendingur fær ekki sent skattkort eftir að hann hefur fengið lögheimilisskráningu ætti hann að hafa samband við Ríkisskattstjóra og spyrjast fyrir um ástæðuna.

  • Mikilvægt er að afhenda launagreiðanda skattkortið við fyrsta tækifæri. Án þess dregur atvinnurekandi fullan skatt af launum og tekur ekki tillit til persónuafsláttar sem kortið veitir.
  • Skattkort gefur um 42.000 kr. í skattaafslátt á mánuði í gegnum persónuafslátt.

           





Til baka, Senda grein, Prenta greinina