Skattframtal
- Allir þeir sem eru skattskyldir á Íslandi þurfa að skila inn skattframtali á hverju ári, venjulega í marsmánuði. Þar skal telja fram heildarlaun ársins á undan, ásamt skuldum og eignum.
- Ef greitt hefur verið of mikið eða of lítið í skatt er það leiðrétt í ágúst sama ár og skattframtali er skilað. Sá sem hefur greitt minna en honum er skylt þarf að greiða það sem upp á vantar og sá sem hefur greitt meira en honum ber fær mismuninn endurgreiddan.
- Talið er fram rafrænt á netinu (www.skattur.is) og er veflykill (aðgangsorð og lykilorð að vefsíðunni) sendur á lögheimili allra skattgreiðenda, 16 ára og eldri. Sé skattframtali ekki skilað áætlar skattstjóri tekjur og álögð gjöld eru reiknuð samkvæmt því.
|
Skattframtali á að skila í mars ár hvert. Nákvæm dagsetning er auglýst á vef Ríkisskattstjóra. |

