Persónuafsláttur
-
- Atvinnurekandi tekur staðgreiðslu af launum starfsmanns en starfsmaðurinn á rétt á fastri upphæð í skattafslátt (persónuafslátt) í hverjum mánuði. Almennur persónuafsláttur er föst upphæð sem allir launþegar fá í skattafslátt og dregst frá skattgreiðslum launþega.
- Persónuafslætti má safna upp á milli mánaða.
- Uppsafnaður persónuafsláttur sem ekki er nýttur innan skattárs fellur niður við upphaf nýs árs.
- Atvinnurekandi getur ekki tekið tillit til persónuafsláttar nema hann hafi skattkort starfsmanns undir höndum.
- Einstaklingar í hjónabandi, staðfestri samvist eða í skráðri samvist geta samnýtt persónuafslátt sinn. Nánari upplýsingar eru á vef Ríkisskattstjóra (www.rsk.is).
-
-
Einstaklingar sem verða 16 ára á launaárinu og hafa lögheimili á Íslandi eiga rétt á persónuafslætti sem dregst af reiknuðum skatti.
- Nánari upplýsingar á vef Ríkisskattstjóra
-
|
Dæmi um hvernig persónuafsláttur virkar: Reiknaður skattur af launum: 75.000 kr. Persónuafsláttur: 42.205 kr. Staðgreiðsla af launum: 32.795 kr. |

