Skattar
- Allir sem vinna á Íslandi eru skattskyldir.
- Skattur af tekjum einstaklinga skiptist í tekjuskatt til ríkisins annars vegar og útsvar sem rennur til sveitarfélags hins vegar.
- Tekjuskattur er þrepaskiptur og fer skatthlutfallið eftir tekjum launþega. Á vefsíðu Ríkisskattstjóra (www.rsk.is) er að finna upplýsingar um staðgreiðslu skatta miðað við upphæð tekna.
- Greiddir skattar koma fram á launaseðli. Nauðsynlegt er að varðveita launaseðla til að sanna að skattar hafi verið greiddir.
Skattafsláttur / persónuafsláttur
- Atvinnurekandi tekur staðgreiðslu af launum starfsmanns en starfsmaðurinn á rétt á fastri upphæð í skattafslátt (persónuafslátt) í hverjum mánuði. Almennur persónuafsláttur er föst upphæð sem allir launþegar fá í skattafslátt og dregst frá skattgreiðslum launþega.
- Persónuafslætti má safna upp á milli mánaða.
- Uppsafnaður persónuafsláttur sem ekki er nýttur innan skattárs fellur niður við upphaf nýs árs.
- Atvinnurekandi getur ekki tekið tillit til persónuafsláttar nema hann hafi skattkort starfsmanns undir höndum.
- Einstaklingar í hjónabandi, staðfestri samvist eða í skráðri samvist geta samnýtt persónuafslátt sinn. Nánari upplýsingar eru á vef Ríkisskattstjóra (www.rsk.is).
Skattkort
Skattyfirvöld gefa út skattkort.
- Ríkisborgari EES-ríkis sem flytur lögheimili sitt til Íslands fær sent skattkort þegar lögheimili hans hefur verið skráð hjá Þjóðskrá Íslands.
- Einstaklingar sem koma frá ríkjum utan EES fá skattkort sent þegar lögheimili hefur verið skráð hjá Þjóðskrá Íslands og atvinnuleyfi hefur verið gefið út. Maki íslensks ríkisborgara fær skattkort sent þegar lögheimili hans hefur verið skráð. Athuga ber að skattkort jafngildir ekki heimild til atvinnu. Ríkisborgarar ríkja sem ekki eiga aðild að EES- eða EFTA-samningunum þurfa að hafa atvinnuleyfi.
Ef útlendingur fær ekki sent skattkort eftir að hann hefur fengið lögheimilisskráningu ætti hann að hafa samband við Ríkisskattstjóra og spyrjast fyrir um ástæðuna.
Skattframtal
- Allir þeir sem eru skattskyldir á Íslandi þurfa að skila inn skattframtali á hverju ári, venjulega í marsmánuði. Þar skal telja fram heildarlaun ársins á undan, ásamt skuldum og eignum.
- Ef greitt hefur verið of mikið eða of lítið í skatt er það leiðrétt í ágúst sama ár og skattframtali er skilað. Sá sem hefur greitt minna en honum er skylt þarf að greiða það sem upp á vantar og sá sem hefur greitt meira en honum ber fær mismuninn endurgreiddan.
- Talið er fram rafrænt á netinu (www.skattur.is) og er veflykill (aðgangsorð og lykilorð að vefsíðunni) sendur á lögheimili allra skattgreiðenda, 16 ára og eldri. Sé skattframtali ekki skilað áætlar skattstjóri tekjur og álögð gjöld eru reiknuð samkvæmt því.

