Skattar og fjármál
Fjármál
-
Þeir sem stunda vinnu á Íslandi þurfa að borga skatt af launum sínum og greiða í lífeyrissjóð.
-
Það er yfirleitt atvinnurekandinn sem sér um að draga skatt og lífeyrissjóðsgreiðslur af launum starfsmanna og koma þeim til skila. Þeir sem eru verktakar þurfa að gera það sjálfir.
-
Laun eru yfirleitt lögð inn á bankareikning og þurfa því allir að hafa bankareikning sem vinna á Íslandi í lengri tíma.


