Vijesti
Róttækar breytingar á húsnæðismálum
Ríkisstjórnin hefur samþykkt sérstakar aðgerðir í húsnæðismálum og verða gerðar talsverðar breytingar á lánum Íbúðalánasjóðs fyrir vikið.
Hámarkslán verður hækkað upp í 20 milljónir króna og ekki verður lengur miðað við brunabótamat heldur lánað fyrir allt að 80% af kaupverði eigna.
Þá verða auknar heimildir til leiguíbúðalána og stofnaðir nýir lánaflokkar hjá sjóðnum til að fjármagna íbúðalán fjármálastofnana.
Breytingar á almennum lánum Íbúðalánasjóðs ganga í gildi þegar félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð þar um.
Nýjar reglur kalla á umfangsmiklar breytingar á vinnslukerfum og vef Íbúðalánasjóðs og eru viðskiptavinir vinsamlegast beðnir að sýna biðlund meðan unnið er að þeim.

