Atvinnuleit - ríkisborgarar innan EES

Atvinnumiðlanir hjálpa fólki í atvinnuleit og veita fólki ráðgjöf um hina ýmsu þætti sem fylgja því að leita sér að vinnu.

Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar

  • Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru opinberar vinnumiðlanir.
  • Þjónustuskrifstofurnar bjóða upp á aðstoð við atvinnuleit. Sú þjónusta er ókeypis.
  • Hjá þjónustuskrifstofum er hægt að skrá sig í atvinnuleit og sækja um störf.
  • Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru staðsettar víða á landinu.

Hér má sjá yfirlit yfir þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar (á vef Vinnumálastofnunar).

Vefur Vinnumálastofnunar.

EURES – EES vinnumiðlun

  • EURES vinnur með öðrum atvinnumiðlunum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Auglýst störf fara í sameiginlegan gagnagrunn og birtast á netinu.
  • Fólk sem er að leita að vinnu sér auglýsingarnar á netinu og getur sótt um gegnum netið.

www.eures.is

EURES veitir þeim sem eru að leita sér að vinnu:

  • Leiðbeiningar við atvinnuleit
  • Ráðgjöf og aðstoð
  • Upplýsingar um lífs- og vinnuskilyrði
  • Upplýsingar um atvinnutækifæri í öðrum EES ríkjum
  • Upplýsingar um almannatryggingar og heilsugæslu
  • Upplýsingar um skattamál
  • Upplýsingar um starfsþjálfunartækifæri
  • Upplýsingar um samanburð á starfsréttindum milli landa
  • Upplýsingar um framfærslu og húsnæðiskosnað
  • Upplýsingar um hagnýt heimilisföng vegna sérþarfa

Þeir sem vilja flytja til Íslands til þess að starfa ættu að kynna sér EURES vinnumiðlun í sínu landi áður en flutt er.

Aðrar vinnumiðlanir

Starfatorg.is - laus störf hjá ríkinu

Mbl.is - atvinnuauglýsingar

Vísir.is – atvinnuauglýsingar

Capacent

Job.is

Vinna.is

Ráðningarþjónustan

Atvinna.is

Íspólska ráðningarþjónustan - ispolska@simnet.is

HH Ráðgjöf - Ráðningarþjónusta

Einnig er hægt að hafa samband við fyrirtæki með símtali, tölvupósti eða með því að mæta á staðinn og athuga hvort þeir séu að ráða nýtt fólk.

Powrót, Wyślij artykuł, Drukuj artykuł