Podatki , finanse

Fjármál, skattar



|  Środek płatniczy  |  Podatki  |  Pomoc społeczna  |



Powrót, Wyślij artykuł, Drukuj artykuł

 

Podatki , finanse

Skattar

  • Allir sem eru skattskyldir á Íslandi, og hafa tekjur yfir skattleysismörkum, greiða skatta af launum sínum sem fara í sameiginlegan sjóð landsmanna.
  • Atvinnurekandi dregur staðgreiðsluna af launum launþegans og skilar til ríkissjóðs. Þeir sem eru verktakar þurfa að greiða skatt af launum sínum sjálfir.
  • Sá sem flytur lögheimili sitt til Íslands fær sent skattkort þegar lögheimili hans hefur verið skráð hjá Þjóðskrá.
  • Mikilvægt er að afhenda launagreiðanda skattkortið við fyrsta tækifæri. Án þess dregur atvinnurekandi 37,2% af heildarlaunum einstaklingsins í skatt og tekur ekki tillit til persónuafsláttar sem kortið veitir.
  • Einstaklingar sem verða 16 ára á launaárinu og hafa lögheimili á Íslandi eiga rétt á persónuafslætti sem dregst af reiknuðum skatti. Persónuafslátturinn er 42.205 kr. á mánuði.
  • Nauðsynlegt er að hafa skattkort til að öðlast persónuafsláttinn.


Senda grein