Orðskýringar

:

39 fyrir 'U'

UMBOÐ

ef maður hefur umboð til að gera eitthvað þá hefur maður formlegt leyfi til þess frá þeim sem veitir manni umboðið

UMBOÐSMAÐUR

umboðsmaður er fulltrúi fólks eða talsmaður; umboðsmaður getur verið opinber starfsmaður sem gætir réttinda ákveðins hóps af fólki, t.d. umboðsmaður barna

UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS

umboðsmaður alþingis er embættismaður sem er kosinn af alþingi og hefur eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga í landinu

UMBOÐSMAÐUR BARNA

umboðsmaður barna er opinber talsmaður barna og unglinga undir 18 ára aldri og vinnur við að gæta réttinda þeirra

UMDÆMI

umdæmi er sérstakt svæði þar sem ákveðin starfsemi fer fram, t.d. starfar lögregla í hverju umdæmi og hver skattstjóri starfar í sínu umdæmi

UMFERÐ

umferð t.d. bíla og annarra farartækja felst í því að þau fara á milli staða á götunum

UMFERÐARLÖG

umferðarlög eru sérstök lög sem fjalla um umferð bíla og annarra ökutækja um götur og vegi

UMFERÐARMERKI

umferðarmerki eru skilti sem leiðbeina ökumönnum og öðrum um reglur í umferðinni og aðstæður á götu eða vegi

UMFERÐARREGLUR

umferðarreglur eru reglur um umferð sem öllum sem ferðast í umferðinni ber að fara eftir

UMSAMINN

ef eitthvað er umsamið þá er búið að semja um það

UMSJÓN

ef maður hefur umsjón með einhverju þá lítur maður eftir því og sér um að það gangi eðlilega fyrir sig eða sé í lagi

UMSJÓNARKENNARI

umsjónarkennari er kennari sem hefur yfirumsjón með ákveðnum bekk í skóla eða ákveðnum nemendum í bekknum

UMSÓKN

umsókn felst í því að maður óskar formlega eftir að fá eitthvað, t.d. starf eða ákveðna þjónustu hjá fyrirtæki eða stofnun

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ

umsóknareyðublað er sérstakt eyðublað sem er fyllt út til þess að sækja um eitthvað, t.d. starf eða ákveðna þjónustu

UMSÆKJANDI

maður er umsækjandi ef maður skilar inn umsókn, t.d. um starf

UMSÖGN

umsögn er það sem er sagt t.d. um einstakling eða málefni; ef maður fær t.d. góða umsögn hjá einhverjum þá talar hann vel um mann; umsögn er oft gefin sem skriflegt álit á einstaklingi eða máli

UMÖNNUN

ef fólk þarf umönnun er einhver sem hugsar um það og aðstoðar við ýmsa hluti, t.d. að baða sig og klæða sig; þeir sem vinna við umönnun vinna t.d. á hjúkrunarheimilum, sjúkrahúsum eða sambýlum fyrir fatlaða

UNDANSKILINN

ef maður er undanskilinn einhverju þá er maður ekki með í því

UNDANTEKNING

það er undantekning þegar vikið er frá einhverri reglu af sérstakri ástæðu

UNDANÞÁGA

ef maður fær undanþágu frá einhverju sem þarf að gera fær maður sérstakt leyfi til þess að þurfa ekki að gera það

UNDIRRITUN

undirritun er það sama og undirskrift

UNDIRSKRIFT

undirskrift er eiginhandaráritun sem maður setur á skjöl, t.d. samninga, til þess að staðfesta það sem þar stendur og sýna að maður samþykki það

UNGBARN

börn eru ungbörn á fyrstu mánuðum ævi sinnar

UNGBARNAEFTIRLIT

foreldrar fara reglulega með börn sín í ungbarnaeftirlit frá því þau fæðast og þar til þau byrja í skóla þar sem þau hitta ljósmóður, hjúkrunarfræðing eða lækni sem fylgist með því að barnið vaxi og þroskist eðlilega, að það fái þær bólusetningar sem það þarf að fá og að foreldrarnir fái fræðslu um umönnun barnsins

UNGBARNAVERND

ungbarnavernd er eftirlit með heilsu og þroska barna frá því að þau fara heim af fæðingardeild og þangað til þau byrja í grunnskóla; í ungbarnaverndinni felst m.a. reglubundin læknisskoðun, bólusetningar gegn ákveðnum smitsjúkdómum, eftirlit með vexti og þroska barnanna og ráðgjöf til foreldra; ungbarnavernd fer t.d. fram á heilsugæslustöðvum

UNGLINGUR

unglingar eru ungt fólk á aldrinum 13-18 ára

UPPBÓT

uppbót er greiðsla sem fólk fær í viðbót við aðrar greiðslur, t.d. bætur eða laun, eftir ákveðnum reglum eða samkvæmt samningum, t.d. uppbót á lífeyri eða orlofsuppbót

UPPHÆÐ

upphæð er ákveðið magn peninga

UPPLÝSINGAR

upplýsingar eru fræðsla eða vitneskja um eitthvað; ef maður gefur einhverjum upplýsingar um eitthvað segir maður honum það sem maður veit eða getur fundið skráð um það

UPPLÝST SAMÞYKKI

samþykki sem veitt er skriflega af fúsum og frjálsum vilja.

UPPSAGNARFRESTUR

uppsagnarfrestur er ákveðinn tími sem líður frá því að einhverju er sagt upp og þangað til uppsögnin tekur gildi; ef t.d. fólki er sagt upp vinnu eða ef það segir sjálft upp starfi sínu þarf það yfirleitt að vinna þangað til uppsagnarfresturinn er liðinn og fær laun þangað til

UPPSÖGN

uppsögn felst í því að atvinnurekandi segir starfsmanni sínum upp vinnunni eða að starfsmaður segir sjálfur upp störfum

UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐI

utankjörfundaratkvæði eru atkvæði fólks sem ekki getur mætt á kjörstað á kjördaginn, t.d. vegna þess að það er veikt eða af því að það er erlendis; fólk getur t.d. greitt utankjörfundaratkvæði hjá ræðismönnum eða í sendiráðum erlendis

UTANKJÖRFUNDARKOSNING

utankjörfundarkosning er kosning sem fer ekki fram á kjörstað eða ekki á kjördag

UTANRÍKISMÁL

utanríkismál eru öll mál sem snúast um opinber samskipti lands við önnur lönd

UTANRÍKISRÁÐHERRA

utanríkisráðherra er ráðherra sem stýrir utanríkisráðuneytinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar

UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ

utanríkisráðuneytið er ráðuneyti sem hefur yfirumsjón með utanríkismálum landsins, t.d. varnarmálum og samskiptum við önnur ríki; yfirmaður ráðuneytisins er utanríkisráðherra

UTANRÍKISSTEFNA

utanríkisstefna lands felst í því sem stjórnvöld hafa ákveðið um samskipti þess við önnur lönd

UTANRÍKISÞJÓNUSTA

utanríkisþjónusta er heiti yfir þær stofnanir sem sjá um utanríkismál, t.d. sendiráð; utanríkisráðuneytið hefur yfirumsjón með utanríkisþjónustu hvers lands


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.