:
10 fyrir 'P'
PASSAMYND
passamynd er lítil ljósmynd af andliti fólks sem er notuð í skilríki, t.d. í vegabréf
PERSÓNU-AFSLÁTTUR
persónuafsláttur er föst upphæð sem maður fær í afslátt af tekjuskatti á hverju ári; persónuafslættinum er deilt niður á árið, t.d. á hvern mánuð sem maður fær borguð laun; til að fá persónuafslátt verður maður að skila skattkorti til launagreiðanda
PERSÓNUEFTIRLIT
persónueftirlit felst í því að stjórnvöld fylgjast með einstaklingum, t.d. með fólki sem kemur inn í landið, m.a. með því að skoða skilríki þess
PERSÓNUSKILRÍKI
persónuskilríki eru opinber skjöl sem einstaklingar geta framvísað til þess að sanna hverjir þeir eru; í persónuskilríkjum er nafn þess sem á þau og ýmsar persónuupplýsingar, t.d. fæðingardagur og heimilisfang, og yfirleitt mynd; persónuskilríki eru t.d. vegabréf og ökuskírteini
PERSÓNUUPPLÝSINGAR
persónuupplýsingar eru upplýsingar um einkahagi manns, t.d. fjölskylduaðstæður og heimilisfang
PERSÓNUVERND
persónuvernd miðar að því að setja reglur um notkun persónuupplýsinga og að hafa eftirlit með notkun þeirra til þess að koma í veg fyrir að upplýsingarnar séu misnotaðar+F119
PRÓF
próf eru spurningar og verkefni sem eru lögð fyrir nemendur í skóla eða á námskeiði til þess að meta hvernig þeim hefur gengið að læra námsefnið í ákveðinni námsgrein, oft í lok námsáfanga eða námskeiðs
PRÓFGJALD
prófgjald er upphæð sem fólk borgar fyrir að fá að taka próf, t.d. í einkaskólum eða á sérstökum námskeiðum
PRÓFSKÍRTEINI
prófskírteini er skírteini sem staðfestir að maður hafi lokið prófum í tilteknum námsgreinum úr skóla eða námskeiði
PRÓFUMSÓKN
prófumsókn er umsókn um að fá að taka tiltekið próf

