Orðskýringar

:

32 fyrir 'N'

NAFNVEXTIR

nafnvextir eru vextir án tillits til verðþróunar (verðbólgu).

NAFNVIRÐI

nafnvirði er upphaflegt skráð verð, t.d. á hlutabréfi. Markaðsverðmæti hlutabréfs fæst með því að margfalda nafnverðið með gengi hlutabréfsins.

NÁM

nám felst í því að læra eitthvað á skipulegan hátt með því að fara í skóla eða á námskeið

NÁMSÁFANGI

námsáfangi í skóla er sá hluti námsgreinar sem er kenndur á einni önn og lýkur yfirleitt með prófi

NÁMSÁRANGUR

námsárangur segir til um það hvernig nemendum hefur gengið að læra námsefnið; námsárangur er oftast mældur með prófi eða verkefnum og nemendur fá einkunn sem sýnir árangur þeirra í hverri námsgrein

NÁMSBÓK

námsbók er bók í tiltekinni námsgrein sem nemendur lesa og læra

NÁMSBRAUT

námsbraut í skóla er leið sem nemendur velja sér þar sem lögð er áhersla á ákveðnar námsgreinar, t.d. tungumál, stærðfræði eða verklegt nám

NÁMSDVÖL

námsdvöl felst í því að nemandi býr eða dvelur einhvers staðar fjarri heimili sínu til að stunda þar nám, t.d. í útlöndum

NÁMSEFNI

námsefni er það sem nemendur þurfa að læra í skólanum eða á námskeiði

NÁMSFLOKKAR

námsflokkar eru menntastofnun utan skólakerfisins þar sem fólk getur lært einstakar námsgreinar á námskeiðum, t.d. íslensku; námsflokkar eru á vegum sveitarfélaga og námskeiðin eru aðallega fyrir fullorðið fólk sem er í vinnu og sækir kennslutíma á kvöldin

NÁMSGREIN

námsgrein er ákveðinn þáttur í því sem kennt er í skóla, t.d. stærðfræði, landafræði eða tungumál; nám í skólum samanstendur af mörgum námsgreinum

NÁMSGÖGN

námsgögn eru t.d. bækur, ljósrituð blöð, myndir og annað efni sem er notað við kennslu í skóla eða á námskeiði

NÁMSKEIÐ

námskeið er kennsla í ákveðinni námsgrein sem stendur í takmarkaðan tíma, t.d. nokkrar vikur eða eina önn

NÁMSKEIÐAHALD

námskeiðahald felst í því að halda námskeið fyrir fólk

NÁMSKEIÐSGJALD

námskeiðsgjald er upphæðin sem þarf að borga fyrir að sækja námskeið

NÁMSLÁN

námslán er lán úr opinberum sjóði sem nemendur á háskólastigi geta fengið samkvæmt ákveðnum reglum; nemendur þurfa ekki að borga afborganir af námsláninu fyrr en þeir hafa lokið námi

NÁMSLEYFI

námsleyfi er tímabundið frí frá vinnu sem fólk fær til þess að stunda nám, t.d. endurmenntun

NÁMSMAÐUR

námsmaður er sá sem stundar nám, aðallega á háskólastigi

NÁMSSTYRKUR

námsstyrkur er styrkur sem fólk fær samkvæmt ákveðnum reglum til þess að stunda nám; ýmsar stofnanir veita námsstyrki, t.d. bankar og háskólar

NÁTTÚRUFRÆÐI

náttúrufræði er námsgrein í skóla þar sem nemendum er kennt um náttúruna, t.d. um stjörnurnar, myndun jarðar, dýr og líffræði mannsins

NAUÐUNGARSALA

nauðungarsala á eign, t.d. íbúð eða bíl, fer fram ef eigandinn getur ekki borgað afborganir af lánum eða gjöld af eigninni og er neyddur til að selja hana til þess að borga upp í skuldir;

NAUÐUNGARUPPBOÐ

nauðungaruppboð felst í því að selja eignir manns fyrir hæsta verð sem hægt er að fá fyrir þær F311og afla þannig peninga til þess að borga upp í skuldir hans

NEMANDI

nemandi er sá sem stundar nám í skóla

NET

net getur verið kerfi þar sem margar tölvur eru tengdar saman, t.d. innan fyrirtækis eða stofnunar; Netið er það sama og Internetið, það er samtenging milli tölva um allan heim sem gerir fólki t.d. mögulegt að skiptast á tölvupósti og að birta og lesa upplýsingar og gögn á vefsíðum

NETBANKI

netbanki er það sama og heimabanki

NETFANG

netfang er sérstakt póstfang sem notað er til að senda einstaklingi, stofnun eða fyrirtæki tölvupóst, t.d .xx@zzz.is

NEYÐARMÓTTAKA

neyðarmóttaka er sérstök þjónusta á sjúkrahúsi þar sem m.a. er tekið á móti fólki sem verður fyrir nauðgun eða öðru kynferðisofbeldi

NEYÐARNÚMER

neyðarnúmer er sérstakt símanúmer sem fólk getur hringt í ef það þarf að fá neyðarþjónustu, t.d. aðstoð lögreglu eða slökkviliðs; neyðarnúmer á Íslandi er 112

NEYÐARÞJÓNUSTA

neyðarþjónusta felst í því að aðstoða fólk sem þarf að fá hjálp strax, t.d. vegna skyndilegra veikinda eða slyss eða af því að fólk hefur týnt greiðslukorti

NEYTANDI

maður er neytandi þegar maður kaupir vörur eða þjónustu af fyrirtækjum

NEYTENDAVERND

neytendavernd lýtur að vernd á hagsmunum neytenda gagnvart seljendum vöru og þjónustu, t.d. varðandi markaðssetningar, skilmála, hollustu og öryggi.

NIÐURFELLING

niðurfelling felst í því að fella niður eða hætta við eitthvað sem hefur verið ákveðið; ef maður fær t.d. niðurfellingu á gjöldum þýðir það að maður þarf ekki að borga þau


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.