Orðskýringar

:

41 fyrir 'K'

KAFFIPÁSA

kaffipása er það sama og kaffitími

KAFFITÍMI

kaffitími er stutt hlé sem starfsmenn fá frá vinnu, t.d. til þess að drekka kaffi

KAUP

það eru kaup ef maður kaupir eitthvað

KAUPANDI

maður er kaupandi ef maður kaupir t.d. vöru eða þjónustu

KAUPMÁLI

kaupmáli er samningur milli hjóna um að ákveðnar eignir séu séreign annars þeirra; ef hjón skilja skiptast séreignir þeirra samkvæmt kaupmála ekki á milli þeirra

KAUPSAMNINGUR

kaupsamningur er samkomulag milli kaupanda og seljanda um kaup á einhverju sem er mjög verðmætt, t.d. húsnæði eða bíl, þar sem m.a. kemur fram hvað eigi að greiða fyrir það og hvernig eigi að borga kaupverðið

KAUPTILBOÐ

maður gerir kauptilboð ef maður vill kaupa eitthvað verðmætt, eins og húsnæði eða bíl, þar sem kemur fram hversu mikið maður er tilbúinn að borga og hvernig maður ætlar að borga það

KENNARI

kennari kennir fólki ýmsar námsgreinar í skólum eða á námskeiðum; kennarar í skólum þurfa að hafa sérstaka menntun og réttindi til mega kenna á ákveðnu skólastigi eða ákveðnar námsgreinar

KENNITALA

kennitala er tíu stafa númer sem allir einstaklingar og fyrirtæki á Íslandi fá úthlutað sem auðkenni; kennitala fólks er skráð í öllum opinberum skrám, t.d. F243þjóðskrá, innritunarskrám í skóla og hjá heilsugæslunni

KENNSLA

kennsla felst í því að kennari kennir nemendum sínum ákveðna námsgrein í skóla eða á námskeiði

KIRKJUMÁLA-RÁÐUNEYTIÐ

kirkjumálaráðuneytið er ráðuneyti sem hefur yfirumsjón með málefnum þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga í landinu; yfirmaður ráðuneytisins er kirkjumálaráðherra

KIRKJUMÁLARÁÐHERRA

kirkjumálaráðherra er ráðherra sem stýrir kirkjumálaráðuneytinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar

KJARASAMNINGUR

kjarasamningur er samningur sem stéttarfélög gera við atvinnurekendur um almenn launakjör félagsmanna sinna

KJÓSANDI

kjósandi er sá sem kýs í kosningum

KJÖRDAGUR

kjördagur er dagurinn þegar kosningar fara fram

KJÖRDEILD

kjördeild er staður þar sem kosning fer fram, t.d. salur eða herbergi; á hverjum kjörstað geta verið margar kjördeildir

KJÖRFUNDUR

kjörfundur er samkoma þar sem kosningar fara fram; kjörfundur er haldinn á ákveðnum kjörstað eða kjörstöðum á tilteknum tíma

KJÖRKASSI

kjörkassi er sérstakur kassi sem maður lætur atkvæðaseðilinn í þegar maður er búinn að kjósa í kosningum

KJÖRKLEFI

kjörklefi er sérstakur staður í kjördeild þar sem maður fyllir út atkvæðaseðilinn án þess að aðrir sjái til

KJÖRSEÐILL

kjörseðill er það sama og atkvæðaseðill

KJÖRSKRÁ

kjörskrá er listi yfir alla þá sem eiga rétt á að kjósa í tilteknum kosningum

KJÖRSTAÐUR

kjörstaður er staður þar sem kosningar fara fram

KJÖRSTJÓRN

kjörstjórn er hópur fólks sem skipuleggur hvernig kosning fer fram og hefur eftirlit með henni

KOMUDAGUR

komudagur er sá dagur sem maður kemur eitthvert, t.d. til lands

KOMUTÍMI

komutími er sá tími dagsins þegar maður kemur eitthvert, t.d. með flugvél

KOSNING

kosning felst í því að kjósendur velja milli einstaklinga eða flokka sem eru í framboði, t.d. til setu á þingi eða í sveitarstjórn; kosning getur líka snúist um ákveðið málefni, t.d. hvort kjósendur samþykkja eða hafna tilteknu máli

KOSNINGALÖG

kosningalög eru sérstök lög um það hvernig kosningar til alþingis og sveitarstjórna eiga að fara fram

KOSNINGARÉTTUR

ef maður hefur kosningarétt þá hefur maður leyfi til þess að kjósa í tilteknum kosningum; þeir sem eru eldri en 18 ára hafa kosningarétt til alþingis og sveitarstjórna á Íslandi

KOSTNAÐUR

kostnaður er allt sem maður þarf að borga í sambandi við eitthvað, t.d. matarinnkaup eða lyf

KRABBAMEINSLEIT

krabbameinsleit er læknisskoðun sem miðar að því að finna ákveðnar tegundir krabbameins á byrjunarstigi til að auka líkurnar á lækningu; á Íslandi er konum t.d. boðið upp á reglulega krabbameinsleit að brjóstakrabbameini

KREDITKORT

kreditkort er greiðslukort sem maður getur borgað með fyrir vörur og þjónustu og notað til þess að taka út peninga í hraðbönkum; maður fær sendan reikning fyrir því sem maður hefur greitt með kreditkortinu í hverjum mánuði og verður að borga hann á ákveðnum degi

KRÓNA

íslensk króna er gjaldmiðillinn sem er notaður á Íslandi

KVENNAATHVARF

kvennaathvarf er hús þar sem konur geta komið og fengið hjálp og húsaskjól ef þær hafa orðið fyrir ofbeldi heima hjá sér

KVITTUN

kvittun er skrifleg staðfesting á því að maður hafi keypt eitthvað og borgað fyrir það

KVÆNTUR

ef karlmaður er kvæntur þá er hann í hjónabandi

KVÖLDNÁMSKEIÐ

kvöldnámskeið er námskeið sem er kennt á kvöldin

KVÖRTUN

ef maður leggur fram kvörtun þá lýsir maður yfir óánægju sinni með eitthvað; kvörtun vegna slæmrar þjónustu felst t.d. í því að maður lætur rétta aðila vita af því að þjónustan hafi verið slæm

KVÖRTUNARFRESTUR

hámarksfrestur neytanda til að leggja fram kvörtun um galla.

GÖLLUÐ VARA - Almennur kvörtunarfrestur er tvö ár. Ef vörunni er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um vörur, s.s. ísskápar, þvottavélar eða leðursófar, er fresturinn fimm ár. Þetta þýðir að þú getur kvartað til seljanda yfir galla, sem þú átt ekki sjálfur sök á, innan þessara tímamarka. Hafi seljandi gert við galla en sami galli komið upp aftur seinna lengist fresturinn. Þú skalt tilkynna seljanda eins fljótt og mögulegt er eftir að þú uppgötvar galla. Tímafresturinn fyrir tikynningu er ekki fastákveðinn, en ef þú kvartar innan tveggja mánaða frá því þú verður galla var telst það alltaf innan tímamarka.

GÖLLUÐ ÞJÓNUSTA - Viljir þú kvarta yfir þjónustu þarftu að tilkynna seljanda innan sanngjarns frests frá því að galli í þjónustunni uppgötvaðist. Hver tímafresturinn fyrir tillkynningu er grundvallast af aðstæðum á hverju sinni. Almennt er lokafresturinn til að kvarta tvö ár frá afhendingu þjónustunnar

KYNSJÚKDÓMUR

kynsjúkdómur er sjúkdómur sem getur borist á milli fólks þegar það stundar kynlíf

KÆRA

kæra felst í því að óska formlega eftir því að tiltekið mál verði rannsakað af lögreglu og afgreitt af dómstólum

KÆRUHEIMILD

kæruheimild er formlegt leyfi til þess að leggja fram kæru


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.