Orðskýringar

:

16 fyrir 'D'

DAGMAMMA

dagmamma er það sama og dagmóðir

DAGMÓÐIR

dagmóðir er kona sem vinnur við að gæta ungra barna á heimili sínu á daginn á meðan foreldrar sækja t.d. vinnu

DAGPENINGAR

dagpeningar eru ákveðin upphæð á dag sem fólk fær úr almannatryggingum eða frá tryggingafélagi eftir ákveðnum reglum, t.d. ef maður verður óvinnufær vegna veikinda eða slyss; dagpeningar geta líka verið greiðslur sem maður fær frá vinnuveitanda sínum til þess að greiða kostnað við ferðir og uppihald ef maður er sendur í ferðalag á vegum fyrirtækisins eða þarf að vinna tímabundið fjarri heimili sínu

DAGSETNING

dagsetning er mánaðardagur, mánuður og ár, t.d. 1. janúar 2007; dagsetning er sett t.d. á bréf eða skjal

DAGVINNULAUN

dagvinnulaun eru þau laun sem maður fær fyrir að vinna reglulegan vinnudag, t.d. frá kl. 9-17

DÁNARBÚ

dánarbú eru allar eigur sem fólk lætur eftir sig þegar það deyr, t.d. húsnæði og peningar

DÁNARBÆTUR

dánarbætur eru bætur úr almannatryggingum eða stéttarfélagi sem fólk getur átt rétt á samkvæmt ákveðnum reglum ef maki þess deyr; barn á framfæri foreldra sinna getur einnig átt rétt á dánarbótum ef foreldri þess deyr

DEBETKORT

debetkort er greiðslukort sem tengist bankareikningi manns; þegar debetkort er notað til þess að borga fyrir vörur og þjónustu eða til þess að taka út peninga í hraðbanka dregst upphæðin strax frá innistæðunni á bankareikningnum

DÓMARI

dómari er lögfræðimenntaður embættismaður sem stjórnar réttarhöldum og kveður upp dóma

DÓMSMÁL

dómsmál er mál sem er rekið fyrir dómstólum

DÓMSMÁLARÁÐHERRA

dómsmálaráðherra er ráðherra sem stýrir dómsmálaráðuneytinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar

DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ

dómsmálaráðuneytið er ráðuneyti sem hefur yfirumsjón með öllum málum sem snerta lög og reglu í landinu; yfirmaður ráðuneytisins er dómsmálaráðherra

DÓMSTÓLL

dómstóll er opinber stofnun þar sem réttarhöld fara fram og dómar eru kveðnir upp

DÓMUR

dómur er ákvörðun sem dómarar taka um mál fyrir rétti og er dómurinn sem þeir kveða upp niðurstaða réttarhaldanna

DRÁTTARVEXTIR

dráttarvextir bætast við skuld sem er ekki borguð á réttum tíma og eru ákveðið hlutfall af upphæðinni sem átti að greiða fyrir hvern dag sem líður frá gjalddaga þangað til skuldin er borguð

DÆMDUR

ef maður er dæmdur þá hlýtur hann dóm fyrir það sem hann hefur gert og þarf að greiða sekt eða taka út refsingu eftir því sem dómari ákveður


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.