:
33 fyrir 'B'
BANKAÁVÍSUN
bankaávísun er ávísun fyrir ákveðinni upphæð sem bankinn gefur út
BANKAKORT
bankakort er greiðslukort sem maður getur notað til að taka út pening af bankareikningi eða til greiðslu í banka eða sparisjóði
BANKAREIKNINGUR
bankareikningur er skrá um viðskipti manns við banka eða sparisjóð og geymir upplýsingar um upphæðir sem maður leggur inn eða tekur út og vexti sem maður ávinnur sér; sami maður getur átt fleiri en einn bankareikning í sama banka eða bankareikninga í nokkrum bönkum
BANKAÞJÓNUSTA
bankaþjónusta er öll sú þjónusta sem bankar og sparisjóðir veita
BANKI
banki er peningastofnun sem tekur að sér að geyma og ávaxta peninga fólks og veitir fólki lán með ákveðnum vöxtum
BARNABÍLSTÓLL
barnabílstóll er sérstakur stóll sem börn eiga að sitja í til öryggis þegar þau eru farþegar í bíl
BARNABÆTUR
barnabætur eru sérstakar bætur frá ríkinu sem foreldrar eiga rétt á að fá samkvæmt ákveðnum reglum fyrir hvert barn sem þeir eiga
BARNAGÆSLA
barnagæsla felst í því að gæta barna, t.d. hjá dagmömmu eða barnfóstru
BARNALÍFEYRIR
barnalífeyrir er sérstök greiðsla sem er greidd með börnum yngri en 18 ára þegar annað foreldra er látið eða er örorkulífeyrisþegi
BARNALÖG
barnalög eru sérstök lög sem fjalla um t.d. barnsmeðlög og forsjá barna
BARNAVERNDARLÖG
barnaverndarlög eru sérstök lög sem fjalla um réttindi barna og skyldur foreldra gagnvart börnum
BARNAVERNDARYFIRVÖLD
barnaverndaryfirvöld eru þær stofnanir og opinberu nefndir sem eiga að sjá til þess börn alist upp við öruggar aðstæður, t.d. með því að bregðast við ef brotið er gegn börnum
BARNEIGN
það er barneign þegar fólk eignast börn; ef konur eru komnar úr barneign þá geta þær ekki lengur átt börn vegna aldurs
BARNSHAFANDI
barnshafandi kona gengur með barn og bíður eftir að fæða það
BARNSMEÐLAG
barnsmeðlag er reglulegar greiðslur sem það foreldri sem ekki er með forsjá barnsins verður að greiða sem framfærslu fyrir barnið
BEKKJARDEILD
bekkjardeild er það sama og bekkur þar sem nemendur á sama aldri eru saman í kennslustundum og hafa sama umsjónarkennara
BEKKUR
bekkur eru allir nemendur í hverjum árgangi í skóla, t.d. fara öll börn í 1. bekk þegar þau byrja í skóla; bekkur í skóla getur líka verið hópur nemenda á sama aldri sem er saman í kennslustundum og hefur sama umsjónarkennara
BIFREIÐASKOÐUN
bifreiðaskoðun felur í sér reglulegt eftirlit með öllum bílum; bifreiðaskoðun fer fram á ákveðnum verkstæðum og ef eitthvað er ekki í lagi verður maður að láta laga það innan ákveðins tíma, annars má ekki keyra bílinn
BÍLALÁN
bílalán er sérstakt lán sem maður getur fengið hjá lánastofnun til þess að kaupa bíl
BÍLBELTI
bílbelti eru sérstakar öryggisólar fyrir ökumann og farþega í bíl
BÓKLEGT NÁM
í bóklegu námi lærir maður námsefnið aðallega af bókum; bóklegar námsgreinar eru t.d. tungumál, saga og náttúrufræði og bóklegt nám er t.d. stundað á bóknámsbrautum í framhaldsskólum (málabraut, félagsfræðibraut, náttúrufræðibraut o.s.frv.)
BÓLUSETNING
þegar fólk fer í bólusetningu fær það sprautu gegn ákveðnum smitsjúkdómum; öll börn á Íslandi eru t.d. bólusett reglulega gegn ýmsum sjúkdómum
BÓLUSETNINGAR-VOTTORÐ
bólusetningarvottorð er vottorð sem sýnir gegn hvaða sjúkdómum fólk hefur verið bólusett og hvenær það var bólusett gegn þeim
BÓTAÞEGI
bótaþegi er sá sem fær bætur frá einhverjum, t.d. félagslegar bætur eða skaðabætur
BRÁÐABIRGÐA
bráðabirgða- fremst í orði merkir að það sem felst í orðinu gildir í stuttan tíma til reynslu eða þangað varanleg úrlausn fæst, t.d. er bráðabirgðaökuskírteini gefið út fyrir byrjendur; ef eitthvað er gert til bráðabirgða þá gildir það bara þangað til varanleg úrlausn fæst
BRÁÐAVAKT
bráðavakt er sérstök deild á sjúkrahúsi þar sem tekið er á móti fólki sem þarf að fá læknisaðstoð strax
BREIÐBANDIÐ
breiðbandið er tíðnisvið notað fyrir verkefni sem þurfa vítt tíðnibil. Breiðbandinu má skipta í nokkur mjórri svið og er þá unnt að nota hvert svið í mismunandi tilgangi (sjónvarp, útvarp, Netið) eða fyrir ólíka notendur.
BROTTFÖR
það er brottför þegar maður fer frá einhverjum stað, t.d. landi eða borg
BROTTVÍSUN
það er brottvísun ef fólki er vísað burt frá einhverjum stað, t.d. frá ákveðnu landi
BÚSLÓÐ
búslóð er safn þeirra hluta sem tilheyra heimili fólks og það getur flutt með sér á milli staða, t.d. húsgögn, heimilistæki, eldhúsáhöld, bækur, fatnaður o.fl.
BÆJARFÉLAG
bæjarfélag er bær eða kaupstaður sem er sérstakt sveitarfélag
BÆJARSKRIFSTOFA
bæjarskrifstofa er skrifstofa þar sem stjórnsýsla bæjarfélags hefur aðsetur
BÆTUR
bætur eru peningar sem fólk fær úr almannatryggingum eða frá tryggingafélagi við sérstakar aðstæður, t.d. ef það hefur orðið fyrir heilsutjóni eða slysi eða ef tjón verður á eigum sem voru tryggðar; fólk getur líka fengið bætur í skattakerfinu eftir ákveðnum reglur, t.d. húsaleigubætur eða barnabætur

