:
7 fyrir 'Í'
ÍBÚÐ
íbúð er húsnæði sem fólk býr í þar sem er a.m.k. eitt herbergi, baðherbergi og eldhús; yfirleitt eru margar íbúðir í einu húsi
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI
íbúðarhúsnæði er húsnæði þar sem fólk býr
ÍBÚÐARKAUP
íbúðarkaup felast í því að kaupa íbúð
ÍBÚÐARLÁN
íbúðarlán er lán sem fólk fær til þess að kaupa íbúð eða annað íbúðarhúsnæði
ÍSLENSKUKUNNÁTTA
íslenskukunnátta er sú þekking og færni sem maður hefur í íslensku; ef íslenskukunnátta manns er góð getur maður auðveldlega skilið það sem er sagt og skrifað á íslensku og getur talað og skrifað íslensku þannig að aðrir geti vel skilið það
ÍÞRÓTTAFÉLAG
íþróttafélag er félagsskapur sem stendur fyrir æfingum og keppni í íþróttum eða ákveðnum greinum þeirra, bæði fyrir börn og fullorðna
ÍÞRÓTTIR
íþróttir er líkamsþjálfun, æfingar og leikir eftir ákveðnum reglum sem miða að því að ná færni t.d. í því að hlaupa, stökkva, skjóta bolta í mark eða synda; algengar greinar íþrótta eru t.d. fótbolti, sund og golf; margir stunda íþróttir sér til gamans en það er líka keppt í mörgum greinum íþrótta; íþróttir eru sérstök námsgrein í skólum

