Orðskýringar

:

14 fyrir 'Á'

ÁBYRGÐ

ef maður gengur í ábyrgð fyrir einhvern sem tekur lán lofar maður að borga lánið til baka ef sá sem tók það getur ekki borgað það sjálfur; ef það er ábyrgð á vörum sem maður kaupir lofar fyrirtækið sem selur manni þær að að gera ókeypis við það sem bilar innan ákveðins tíma eða borga fyrir viðgerðina

ÁFANGAKERFI

í framhaldsskólum þar sem er áfangakerfi eru ekki bekkir eða árgangar heldur þurfa nemendur að ljúka ákveðnum fjölda áfanga í hverri námsgrein, t.d. til stúdentsprófs

ÁFANGI

áfangi í skóla er sá hluti námsgreinar sem er kenndur á einni önn og lýkur yfirleitt með prófi

ÁKVARÐA

ef einhver ákvarðar eitthvað þá ákveður hann að það sé niðurstaðan

ÁKVÆÐI

ákvæði eru reglur eða fyrirmæli sem fólk þarf að fara eftir, t.d. í lögum og samningum

ÁKVÖRÐUN

ef tekin er ákvörðun felst það í því að eitthvað er ákveðið eða ákvarðað

ÁLAG

ef maður fær greitt álag fyrir vinnu þá fær maður greitt meira en föst laun, t.d. vegna þess að maður hefur unnið yfirvinnu; ef maður er undir álagi, t.d. í vinnunni, þá er mikið að gera hjá manni

ÁLAGNING

álagning felst í því að skattar eru lagðir t.d. á tekjur fólks; álagning á vörur eða þjónustu felst í því að verðið fyrir það er ákveðið

ÁLAGNINGARSEÐILL

álagningarseðill er árlegt yfirlit frá skattayfirvöldum sem sýnir hvað maður á að borga í skatta á árinu, hvað maður er þegar búinn að borga í staðgreiðslu og hvað maður skuldar eða á inni hjá skattinum

ÁMINNING

ef maður fær áminningu fyrir eitthvað sem maður hefur gert rangt þá fær maður tiltal og er varaður við því að gera það aftur; ef manni er veitt áminning vegna einhvers sem maður hefur gert í vinnunni getur maður fengið sekt fyrir það eða misst vinnuna ef maður gerir það aftur

ÁRGANGUR

árgangur er sá hópur nemenda sem er fæddur á sama ári

ÁRITUN

áritun er undirskrift á skjal í ákveðnum tilgangi, t.d. vegabréfsáritun frá yfirvöldum eða áritun á skuldabréf

ÁRITUNARSKYLDUR

ef maður er áritunarskyldur þá verður maður að hafa vegabréfsáritun

ÁVÍSUN

ávísun er sérstakt eyðublað frá banka eða sparisjóði sem maður fyllir út og notar í staðinn fyrir peninga til að borga fyrir vörur eða þjónustu; þegar ávísun er innleyst er upphæðin tekin af tékkareikningi manns


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.