Mat á námi og starfsréttindum

Mat á námi

Mat á námi / menntun getur bætt stöðu fólks á vinnumarkaði, aukið möguleika á vinnu og hækkað laun.

Til þess að hægt sé að meta erlent nám þarf að leggja fram fullnægjandi gögn um það nám sem var stundað, meðal annars afrit af prófskírteini, ásamt þýðingum sem eru unnar af löggiltum skjalaþýðendum. Þýðingarnar mega vera á ensku eða Norðurlandamáli.

Sjá lista yfir löggilta skjalaþýðendur.

Það sem þarf að koma fram er:

  1. Námsgreinar og lengd námsins í árum, mánuðum eða vikum.

  2. Starfsþjálfun ef hún er hluti af náminu.

  3. Starfsreynsla.

  4. Þau réttindi sem námið veitir í heimalandinu.

Sjá upplýsingar um viðurkenningu á námi á vefsíðunni Europass.is

Starfsréttindi

Erlendir ríkisborgarar sem flytja til Íslands þurfa að ganga úr skugga um að starfsréttindi þeirra erlendis frá séu gild á Íslandi ef þeir hyggjast starfa við þá grein sem þeir hafa menntað sig til.

  • Þeir sem hafa próf frá Norðurlöndum eða EES-svæðinu hafa yfirleitt réttindi sem eru gild á Íslandi, en þó getur verið nauðsynlegt að afla sér leyfis til starfa.
  • Þeir sem eru menntaðir í löndum utan EES-svæðisins þurfa nánast alltaf að láta meta réttindi sín hér á landi.
  • Viðurkenningin á aðeins við um starfsgreinar sem eru löggiltar (samþykktar) af íslenskum stjórnvöldum.
Sjá upplýsingar um mat og viðurkenningu á starfsmenntun eftir starfsgreinum á vefsíðunni Europass.is
  • Ef menntunin nær ekki yfir löggilta starfsgrein þá er það vinnuveitandinn sem metur hvort hún uppfylli skilyrði til ráðningar.
  • Það er mismunandi hvert á að senda umsóknir um mat á námi. Það fer meðal annars eftir því hvort viðkomandi komi frá landi innan EES eða ekki.
  • Einstök ráðuneyti meta nám í þeim greinum sem undir þau heyra. Þannig viðurkennir til dæmis heilbrigðisráðuneytið menntun og prófskírteini einstaklinga í heilbrigðisgreinum.

Nánari upplýsingar á www.europass.is

Til baka, Senda grein, Prenta greinina