Leikskólar
Leikskólanám er ekki skylda. Leikskólinn er fyrir öll börn sem eru yngri en sex ára.
Umsókn
-
Foreldrar sækja um leikskóladvöl fyrir barn sitt í því sveitarfélagi þar sem barnið er skráð með lögheimili.
Í sumum sveitarfélögum er hægt að sækja um leikskólapláss þegar barnið fæðist en hjá flestum sveitarfélögum gilda aldurstakmörk. Umsóknareyðublöð og móttaka á umsóknum um leikskólavist er í öllum leikskólum, á þjónustumiðstöðvum og á flestum skrifstofum sveitarfélaga. Hjá sumum sveitarfélögum er hægt að sækja um leikskóladvöl á vefjum þeirra
Sveitarfélög á landinu
-
Í flestum sveitarfélögum þarf að borga ákveðið gjald fyrir leikskóladvölina. Gjaldið þarf að borga 11 mánuði á ári en gert er ráð fyrir að barn taki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Nánari upplýsingar um gjaldskrá leikskóla er að finna á vefjum sveitarfélaga. Sveitarfélög á landinu
-
Einstæðir foreldrar, námsmenn og öryrkjar fá ákveðinn afslátt af leikskólagjaldi. Þá er einnig veittur systkinaafsláttur ef fleira en eitt barn er á leikskóla. Nánari upplýsingar um afslátt fyrir ákveðna hópa er að finna á vefjum sveitarfélaga.
-
Fötluð börn eiga rétt á leikskóladvöl samkvæmt lögum. Hana á að veita á almennum leikskólum með nauðsynlegri stuðningsþjónustu eða á sérhæfðum deildum.
-
Leikskólinn á að leggja grunn að íslenskukunnáttu barna sem tala annað móðurmál en íslensku og kynna þeim íslenskt samfélag.
-
Biðlistar eru á mörgum leikskólum og geta því foreldrar og barn þeirra þurft að bíða eftir plássi í einhvern tíma. Oftast raðast börn á biðlista eftir aldri, þau elstu fyrst.
-
Algengast er að börn sæki leikskóla frá 18 mánaða aldri þar til þau hefja nám í grunnskóla. Börn dvelja allt frá fjórum klukkutímum upp í níu klukkutíma, alla virka daga á leikskólum.
-
Þegar barn byrjar í leikskóla er gerður samningur milli leikskólans og foreldrisins. Það er hægt að segja samningnum upp með eins mánaðar fyrirvara.
-
Leikskólar eru ýmist reknir af sveitarfélögum, einkareknir eða einkareknir með þjónustusamningi við sveitarfélagið.
Vert að skoða
Leikskólar á landinu á menntagatt.is
Börnin okkar, samtök foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík
Heimili og skóli, landssamtök foreldra
Leikskólar á landinu á vef menntamálaráðuneytis
Leikskólar á vef Reykjavíkurborgar
Netla, veftímarit um uppeldi og menntun, Rannsóknarstofnun KHÍ

