-
Grunnskólanám er skylda. Skólaskylda í grunnskólum þýðir að börn og ungmenni á aldrinum 6 – 16 ára eiga að stunda þar nám.
-
Foreldrar verða að skrá börn sín í grunnskóla og sjá til þess að þau stundi námið. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á vefjum flestra grunnskóla og sveitarfélaga.
Sveitarfélög á landinu
-
Börn og unglingar, sem sökum fötlunar eða félagslegra og tilfinningalegra örðugleika eiga erfitt með nám, hafa rétt á sérstökum stuðningi í námi.
-
Grunnskólanámið skiptist í þrjú stig. Á yngsta stigi eru nemendur fyrsta til fjórða bekkjar, á miðstigi eru nemendur fimmta til sjöunda bekkjar og á efsta stigi, unglingastigi, eru nemendur áttunda til tíunda bekkjar.
-
Grunnskólarnir eru einsetnir, það er kennsludagur nemenda er samfelldur með stundarhléum og matarhléi. Starfstími nemenda er að lágmarki 9 mánuðir á ári, 180 skóladagar.
-
Nemendur í efstu bekkjum grunnskóla geta stundað nám og/eða fjarnám við framhaldskóla samhliða grunnskólanámi. Ákvörðun um námið er tekin í samráði við skólastjórnendur. Nánari upplýsingar um fjarnám er að finna á vefjum framhaldsskóla.
Nám barna og unglinga í grunnskólum sem reknir eru á vegum sveitarfélaga er ókeypis.
-
Engir biðlistar eru í grunnskólum.
Vert að skoða
Til baka,
Senda grein,
Prenta greinina