-
Nám í framhaldsskólum er ekki skylda. Skólarnir eru ýmist nefndir fjölbrautaskólar, framhaldsskólar, iðnskólar, menntaskólar eða verkmenntaskólar.
-
Allir sem hafa lokið grunnskóla eða hlotið svipaða menntun geta byrjað í framhaldsskóla.
-
Það skiptir miklu máli að tíundu bekkingar og forráðamenn þeirra og væntanlegir framhaldsskólanemendur kynni sér vel námsframboð skólanna. Námsráðgjafar og aðrir starfsmenn grunn- og framhaldsskóla veita einnig upplýsingar.
-
Nemendur sem eru að ljúka tíunda bekk í grunnskóla og forráðamenn þeirra fá, á vormánuðum (april-maí), bréf frá menntamálaráðuneytinu með upplýsingum um innritun í dagskóla framhaldsskóla.
-
Aðrir umsækjendur um nám í dagskóla framhaldsskóla geta nálgast allar upplýsingar um nám og innritun á
vef Menntagáttar.
-
Hægt er að fylgjast með inntökuferlinu á vef Menntagáttar. Þegar skólavist hefur verið úthlutað þarf umsækjandi að staðfesta hana með greiðslu innritunargjalds.
-
Þeim nemendum sem ekki ná tilskildum árangri í lokaprófum tíunda bekkjar á að standa til boða nám á almennri braut framhaldsskóla.
-
Misjafnt er hversu langur námstími framhaldsskólanema er og fer það eftir því hvort viðkomandi er í bóknámi eða verknámi (starfsnámi eða iðnnámi).
-
Í mörgum framhaldsskólum eru sérdeildir, starfsbrautir og önnur námsframboð sem sérstaklega eru ætlaðar nemendum með sérþarfir.
-
Margir framhaldsskólar bjóða upp á nám í öldungadeildum kvöldskóla sem einkum er ætlað fullorðnum nemendum. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir, að hausti og eftir áramót.
-
Einnig bjóða margir framhaldsskólar upp á fjarnám. Nánari upplýsingar er að finna á vefjum framhaldsskóla sem bjóða upp á slíkt nám.
-
Framhaldsskólanemum á landsbyggðinni sem þurfa að sækja skóla út fyrir sitt sveitarfélag standa til boða styrkir, ýmist frá sveitarfélaginu eða svokallaður jöfnunarstyrkur.
-
Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda löggilt iðnnám og annað samþykkt starfsnám geta sótt um námslán.
-
Fjölskyldur eða forráðamenn framhaldsskólanema geta sótt um styrk úr Framtíðarsjóði Hjálparstarfs kirkjunnar eða hjá sveitarfélögunum vegna útgjalda. Allar nánari upplýsingar fást hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og skrifstofum sveitarfélaga í viðkomandi sveitarfélagi.