Fjölskyldusameining
Að flytja til Íslands vegna fjölskyldusameiningar
Í flestum tilfellum eru nánustu aðstandendur skilgreindir sem:
-
maki, sambúðarmaki og samvistarmaki,
-
niðjar (börn eða afkomendur) yngri en 18 ára og á framfæri viðkomandi eða maka hans
-
ættmenni hans eða maka að feðgatali (yfirleitt foreldrar eða afar/ömmur) eldri en 66 ára og á þeirra framfæri.
Aðstandendur ríkisborgara innan EES sem sjálfir koma frá ríki utan EES þurfa að sækja um dvalarskírteini og skrá dvöl sína hér á landi. Nánari upplýsingar má nálgast hér (Á vef Útlendingastofnunar)
Aðstandendur íslensks ríkisborgara og erlends ríkisborgara sem er með búsetuleyfi geta sótt um dvalarleyfi ásamt aðstandendum erlends ríkisborgara sem er með eitthvað af eftirtöldum dvalarleyfum:
-
Dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar
-
Dvalarleyfi íþróttafólks
-
Dvalarleyfi doktorsnema
-
Erlendur ríkisborgari sem fyrir breytingar á lögum um útlendinga (þann 1. águst 2008) var með dvalar- og atvinnuleyfi (B- eða C-leyfi) en hefur eftir lagabreytingu fengið útgefið leyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli B.
Hægt er að klikka á eftirfarandi tengla til þess að nálgast nánari upplýsingar um rétt aðstandenda til fjölskyldusameiningar og gögn sem þurfa að fylgja umsókn. (Á vef Útlendingastofnunar)
Ertu aðstandandi útlendings með dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar?
Ertu aðstandandi útlendings með dvalarleyfi vegna doktorsnáms?
Ertu aðstandandi útlendings með dvalarleyfi fyrir íþróttafólk?
Ertu aðstandandi útlendings með búseturleyfi?




